Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Upplýsingar
Undirritunardagur
10. janúar 2023
Útgáfudagur
10. janúar 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 4/2023
10. janúar 2023
AUGLÝSING
um undanþágu lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga.
1. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 og auglýsingar nr. 9/2020, að fallast á tillögu fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. einnig umsögn Samkeppniseftirlitsins, um að eftirtaldir lögaðilar skuli ekki falla undir gildissvið laganna. Skal undanþága hvers þeirra endurskoðuð eigi síðar en 10. janúar 2026:
- Blámi – fjárfestingarfélag ehf.
- Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf.
- Flói ehf.
- Hömlur ehf.
- Hömlur fyrirtæki ehf.
- Lindir Resources ehf.
- Landsbréf hf.
2. gr.
Forsætisráðherra hefur ákveðið, með vísan til 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga, að undanþágur eftirtalinna lögaðila frá gildissviði upplýsingalaga skuli falla brott:
- Holtavegur 10 ehf.
- Iceland Construction ehf.
- Span ehf.
- SPN1 hf.
3. gr.
Auglýsing þessi er birt samkvæmt heimild í 3. mgr. 2. gr. upplýsingalaga og öðlast þegar gildi.
Forsætisráðuneytinu, 10. janúar 2023.
Katrín Jakobsdóttir.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2023