Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Fjölþjóðasamningar

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

23. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 16/2026

11. júní 2026

AUGLÝSING

um ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 1/2023, sem komið var á fót með samningnum um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. auglýsingu nr. 2/2020, um breytingu á I. hluta I. viðauka við samninginn.

Ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 1/2023 frá 27. september 2023, sem komið var á fót með samningnum um ráðstafanir vegna útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu og Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. auglýsingu nr. 2/2020, um breytingu á I. hluta I. viðauka þess samnings, sem Ísland, Liechtenstein og Noregur gerðu við Bretland þann 28. janúar 2020.

Ákvörðunin öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 27. september 2023 og er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 11. júní 2026.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

C deild — Útgáfudagur: 23. júní 2026

Tengd mál