Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara
Málaflokkur
Flutningar, Eldsneyti
Undirritunardagur
20. desember 2016
Útgáfudagur
27. desember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1164/2016
20. desember 2016
AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.
Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Byggðastofnun að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2017 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið:
| Bifreiðabensín | 0,57 kr. á lítra | |
| Gasolía | 0,76 kr. á lítra | |
| Aðrar olíur og blöndur til brennslu | 0,05 kr. á kg | |
| Flugvélabensín | 0,12 kr. á lítra | |
| Flugsteinolía (þotueldsneyti) | 0,12 kr. á lítra |
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til Flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.
Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 334/2016.
Byggðastofnun, 20. desember 2016.
Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri.
Arnar
Már
Elíasson,
formaður
stjórnar
Flutningsjöfnunar-
sjóðs
olíuvara.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2016