Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Félagsmál, Húsnæðismál
Undirritunardagur
5. apríl 2017
Útgáfudagur
27. apríl 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 359/2017
5. apríl 2017
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016, um húsnæðisbætur.
1. gr.
Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
| Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk m.v. árstekjur |
| 1 | 3.373.000 kr. |
| 2 | 4.461.064 kr. |
| 3 | 5.222.710 kr. |
| 4 eða fleiri | 5.657.936 kr. |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr. og 4. tölul. 1. mgr., sbr. 2. mgr., 30. gr. laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast þegar gildi og skal gilda frá og með 1. janúar 2017 um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi. Mismunur á þeim húsnæðisbótum sem umsækjandi á rétt til samkvæmt breyttum frítekjumörkum skv. 1. gr. og þeim húsnæðisbótum sem greiddar hafa verið vegna leigu íbúðarhúsnæðis í janúar, febrúar og mars 2017 skal greiðast umsækjanda eigi síðar en 30. apríl 2017.
Velferðarráðuneytinu, 5. apríl 2017.
Þorsteinn
Víglundsson
félags-
og
jafnréttismálaráðherra.
Hanna Sigr. Gunnsteinsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 27. apríl 2017