Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
19. október 2016
Útgáfudagur
24. október 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 112/2016
19. október 2016
LÖG
um aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
1. gr.
Á eftir 3. gr. laganna kemur ný grein, 3. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Föst starfsstöð.
Föst
starfsstöð,
sbr.
4.
tölul.
1.
mgr.
3.
gr.,
merkir
fasta
atvinnustöð
þar
sem
starfsemi
fyrirtækis
fer
að
nokkru
eða
öllu
leyti
fram.
Byggingarsvæði
eða
byggingar-
eða
uppsetningarframkvæmd
telst
því
aðeins
föst
starfsstöð
að
hún
standi
lengur
en
sex
mánuði.
Þrátt
fyrir
1.
og
2.
mgr.
telst
fyrirtæki
ekki
hafa
fasta
starfsstöð
hérlendis
vegna
starfsemi
sem
er
aðeins
ætlað
að
undirbúa,
styðja
við
eða
reka
aðra
starfsemi
fyrirtækisins,
þ.m.t.
að
nýta
aðstöðu
til
geymslu
gagna,
sýningar
eða
birgðahalds
á
vörum
eða
öflunar
upplýsinga
fyrir
fyrirtækið.
Umráð
erlends
fyrirtækis
á
netþjónum
og
tengdum
tölvubúnaði
til
að
annast
fyrrgreinda
starfsemi
mynda
ekki
ein
og
sér
fasta
starfsstöð
þess
hérlendis.
Ef
fyrirtæki
eða
aðili
sem
það
hefur
náin
tengsl
við
rekur
fleiri
en
eina
atvinnustöð
hérlendis
þar
sem
fram
fer
samþætt
starfsemi
skal
meta
hana
sem
eina
heild
við
mat
á
því
hvort
um
undirbúnings-
eða
stoðstarfsemi
sé
að
ræða.
Aðili
telst
hafa
náin
tengsl
við
fyrirtæki
í
skilningi
þessarar
málsgreinar
ef
annar
hefur
yfirráð
yfir
hinum
eða
báðir
lúta
yfirráðum
sömu
aðila.
Fyrirtæki
telst
ekki
hafa
fasta
starfsstöð
hér
á
landi
þótt
það
reki
hér
viðskipti
fyrir
milligöngu
miðlara,
umboðsmanns
eða
annars
óháðs
umboðsaðila,
ef
þessir
milligönguaðilar
koma
fram
innan
marka
venjulegs
atvinnureksturs
þeirra.
Ef
milligönguaðili
sem
ekki
er
óháður
hefur
á
hendi
starfsemi
fyrir
fyrirtæki
og
hefur
heimild
til
að
gera
samninga
fyrir
þess
hönd
hér
á
landi
eða
gegnir
að
jafnaði
lykilhlutverki
sem
leiðir
til
samningagerðar
án
efnislegrar
breytingar
af
hálfu
viðkomandi
fyrirtækis,
telst
fyrirtækið
hafa
hér
fasta
starfsstöð.
Þetta
á
þó
ekki
við
ef
starfsemi
þessa
aðila
er
takmörkuð
við
þá
starfsemi
sem
um
ræðir
í
3.
mgr.
og
sem
mundi
ekki
gera
þessa
föstu
atvinnustöð
að
fastri
starfsstöð
samkvæmt
ákvæðum
þeirrar
málsgreinar
þótt
innt
væri
af
hendi
frá
fastri
atvinnustöð.
Þótt
félag
sem
er
heimilisfast
utan
Íslands
stjórni
eða
sé
stjórnað
af
félagi
sem
er
heimilisfast
á
Íslandi
eða
hefur
með
höndum
starfsemi
hér
á
landi,
annaðhvort
frá
fastri
atvinnustöð
eða
á
annan
hátt,
leiðir
það
í
sjálfu
sér
ekki
til
þess
að
annaðhvort
þessara
félaga
sé
föst
atvinnustöð
hins.
Ráðherra
skal
með
reglugerð
setja
nánari
ákvæði
um
framkvæmd
þessarar
greinar.
2. gr.
Á eftir orðunum „milli tengdra lögaðila“ í 1. málsl. 3. mgr. 57. gr. laganna kemur: eða milli íslensks lögaðila og lögaðila í lágskattaríki.
3. gr.
Á eftir 57. gr. a laganna kemur ný grein, 57. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Takmörkun á frádrætti vaxtagjalda.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
tölul.
31.
gr.
takmarkast
frádráttur
vaxtagjalda
og
affalla,
sbr.
1.
og
2.
tölul.
1.
mgr.
49.
gr.,
skattaðila
skv.
2.
gr.
vegna
lánaviðskipta
við
tengda
aðila
skv.
4.
mgr.
57.
gr.
við
30%
af
hagnaði
skattaðilans.
Þau
vaxtagjöld
og
afföll
sem
umfram
eru
koma
ekki
til
frádráttar.
Með
hagnaði
í
1.
mgr.
er
átt
við
hagnað
samkvæmt
ársreikningi
að
viðbættum
tekjuskatti,
fjármagnsliðum,
afskriftum
og
niðurfærslum
fastafjármuna.
Hafi
skattaðili
fært
í
rekstrarreikning
hlutdeildartekjur
frá
öðru
félagi
innan
samstæðunnar
skal
draga
þær
frá
framangreindum
hagnaði
og
bæta
við
úthlutuðum
arði
frá
sama
félagi
hafi
arðgreiðsla
átt
sér
stað.
Ákvæði
1.
mgr.
á
ekki
við
ef:
- vaxtagjöld og afföll skattaðila, sbr. 1. og 2. tölul. 1. mgr. 49. gr., vegna lánaviðskipta við tengda aðila skv. 4. mgr. 57. gr. eru lægri en 100 millj. kr.,
- lánveitandi ber ótakmarkaða skattskyldu hérlendis,
- skattaðili sýnir fram á að eiginfjárhlutfall hans sé eigi lægra en tveimur prósentustigum undir eiginfjárhlutfalli samstæðu sem hann tilheyrir; undanþágan gildir þó ekki ef eigið fé skattaðila var hækkað innan við sex mánuðum fyrir dagsetningu efnahagsreiknings og lækkað aftur að samsvarandi fjárhæð innan við sex mánuðum eftir dagsetningu efnahagsreiknings; hafi skattaðili bókfært eignarhlut í öðru fyrirtæki samstæðunnar samkvæmt hlutdeildaraðferð ber við útreikning á eiginfjárhlutfalli að miða við kostnaðarverð eignarhlutans, eða
- skattaðili er fjármálafyrirtæki samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, vátryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi eða félag í eigu fyrrgreindra aðila sem starfar í sambærilegum rekstri.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð þar sem kveðið er á um nánari skilyrði um framkvæmd þessarar greinar og skilgreiningar hugtaka.
4. gr.
Á eftir 91. gr. laganna kemur ný grein, 91. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Ríki-fyrir-ríki skýrsla um skattskil.
Skattaðili
skv.
2.
gr.
sem
er
móðurfélag
heildarsamstæðu,
sbr.
lög
um
ársreikninga,
sem
er
með
heimilisfesti
í
fleiri
ríkjum
skal
fyrir
lok
hvers
almanaksárs
að
loknu
reikningsári
skila
ríkisskattstjóra
skýrslu
með
upplýsingum
um
tekjur
og
skatta
í
þeim
ríkjum
þar
sem
félög
innan
heildarsamstæðunnar
eiga
heimilisfesti
(ríki-fyrir-ríki
skýrsla
um
skattskil).
Skýrslan
skal
einnig
innihalda
lýsingu
á
atvinnustarfsemi
heildarsamstæðunnar
í
hverju
ríki,
auk
upplýsinga
um
hvert
samstæðufélaga
og
þá
efnahagslegu
starfsemi
sem
félögin
hafa
með
höndum.
Skyldan
til
að
skila
ríki-fyrir-ríki
skýrslu
um
skattskil
gildir
ekki
ef
tekjur
heildarsamstæðunnar
á
síðasta
reikningsári
voru
lægri
en
100
milljarðar
kr.
Skylda
til
að
skila
ríki-fyrir-ríki
skýrslu
um
skattskil
skv.
1.
mgr.
hvílir
einnig
á
öðrum
félögum
á
Íslandi
þrátt
fyrir
að
þau
teljist
ekki
vera
móðurfélag
heildarsamstæðu
ef
móðurfélag
heildarsamstæðu
er
erlent
og:
- hinu erlenda móðurfélagi er ekki skylt að skila inn ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil í heimilisfestarríkinu,
- heimilisfestarríki hins erlenda móðurfélags hefur ekki gert upplýsingaskiptasamning við Ísland sem kveður á um sjálfvirk upplýsingaskipti á ríki-fyrir-ríki skýrslum um skattskil sem er í gildi við lok reikningsársins skv. 1. mgr., eða
- ríkisskattstjóri hefur tilkynnt íslenska félaginu að heimilisfestarríki móðurfélagsins hafi ekki gert upplýsingaskiptasamning við Ísland sem um getur í b-lið eða sendir ekki íslenskum skattyfirvöldum af öðrum ástæðum ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil.
Eigi
1.
mgr.
við
fleiri
en
einn
skattaðila
skulu
þeir
ákveða
hver
þeirra
sé
ábyrgur
fyrir
skilum
á
ríki-fyrir-ríki
skýrslu
um
skattskil
og
tilkynna
ríkisskattstjóra
um
þá
ákvörðun.
Félag,
sem
á
lögheimili
á
Íslandi
og
er
hluti
af
heildarsamstæðu
þar
sem
einu
eða
fleiri
félögum
er
skylt
að
skila
ríki-fyrir-ríki
skýrslu
um
skattskil
skv.
1.
og
2.
mgr.,
skal
eftir
lok
reikningsárs
tilkynna
ríkisskattstjóra
hvaða
félag
í
samstæðunni
skili
ríki-fyrir-ríki
skýrslu
um
skattskil
og
um
heimilisfestarríki
þess.
Ráðherra
setur
með
reglugerð
nánari
ákvæði
um
framkvæmd
þessarar
greinar,
þar
á
meðal
um
efni
og
form
ríki-fyrir-ríki
skýrslu
um
skattskil.
5. gr.
Á eftir orðinu „fjármálafyrirtæki“ í 3. mgr. 92. gr. laganna kemur: rafeyrisfyrirtæki.
6. gr.
Við 1. mgr. 97. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimild til að endurákvarða skatt skv. 96. gr. skal þó taka til síðustu tíu ára á undan því ári þegar endurákvörðun fer fram vegna tekna og eigna skattaðila í lágskattaríkjum.
7. gr.
Við 8. mgr. 110. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó fyrnist sök skv. 109. gr. vegna tekna og eigna í lágskattaríkjum á tíu árum.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 111. gr. laganna:
- Við 1. tölul. 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í þessu skyni skal tollstjóri m.a. annast áhættugreiningu á sviði innheimtu opinberra gjalda.
-
5.
mgr.
orðast
svo:
Innheimtuaðilum samkvæmt þessari grein skal heimill aðgangur að fasteigna-, skipa- og ökutækjaskrá í því skyni að sannreyna eignastöðu einstakra gjaldenda. Að tekinni ákvörðun um að krefjast aðfarar vegna vanskila opinberra gjalda er ríkisskattstjóra skylt að veita löglærðum fulltrúa innheimtuaðila aðgang að skattframtölum gjaldanda í þeim tilgangi að kanna eignastöðu viðkomandi. Ákvæði 1. og 5. mgr. 94. gr. eiga við um innheimtuaðila samkvæmt þessari grein á sama hátt og önnur skattyfirvöld.
II. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
staðgreiðslu
opinberra
gjalda,
nr.
45/1987,
með
síðari
breytingum.
9. gr.
Við 7. mgr. 31. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó fyrnist sök skv. 30. gr. vegna tekna og eigna í lágskattaríkjum á tíu árum.
III. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
staðgreiðslu
skatts
á
fjármagnstekjur,
nr.
94/1996,
með
síðari
breytingum.
10. gr.
Við 7. mgr. 20. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó fyrnist sök skv. 19. gr. vegna tekna og eigna í lágskattaríkjum á tíu árum.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
11. gr.
Við 5. mgr. 26. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Heimild til endurákvörðunar skatts samkvæmt þessari grein skal þó taka til síðustu tíu ára á undan því ári þegar endurákvörðun fer fram vegna tekna og eigna skattaðila í lágskattaríkjum, hvort heldur sem tekjur þessar eða eignir eru gefnar upp af sjálfsdáðum eða uppgötvast við skatteftirlit eða á annan hátt.
12. gr.
Við 7. mgr. 41. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó fyrnist sök skv. 40. gr. vegna tekna og eigna í lágskattaríkjum á tíu árum.
V. KAFLI Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
13. gr.
Á eftir 30. tölul. 1. gr. laganna koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Viðurkenndur rekstraraðili: Aðili sem hlotið hefur VRA-vottun tollstjóra og getur notið sérstakrar meðferðar við tollframkvæmd.
- VRA-vottun: Vottun útgefin af tollstjóra á því að tiltekinn lögaðili teljist viðurkenndur rekstraraðili.
14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr. laganna:
- Við 1. málsl. 2. mgr. bætist: hvort sem innflytjandi er bókhaldsskyldur eða ekki.
- 3. mgr. fellur brott.
15. gr.
Orðin „eða tollstjóra í þeim tilvikum þegar innflytjandi er ekki bókhaldsskyldur, sbr. 3. mgr. 29. gr.“ í 2. málsl. 2. mgr. 33. gr. laganna falla brott.
16. gr.
Í stað orðanna „eða atriði sem liggja til grundvallar ákvörðun aðflutningsgjalda, svo sem tollverð og tollflokkun“ í 1. mgr. 117. gr. laganna kemur: atriði sem liggja til grundvallar ákvörðun aðflutningsgjalda, svo sem tollverð og tollflokkun, eða álag skv. 180. gr. b.
17. gr.
Í stað orðanna „og 2. mgr. 145. gr.“ í 1. mgr. 118. gr. laganna kemur: 2. mgr. 145. gr. og 180. gr. b.
18. gr.
Á eftir XX. kafla laganna kemur nýr kafli, XX. kafli A, VRA-vottun, með fimm nýjum greinum, 145. gr. a – 145. gr. e, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:
a. (145. gr. a.)
Veiting VRA-vottunar.
Tollstjóra
er
heimilt,
á
grundvelli
umsóknar,
að
veita
lögaðila
VRA-vottun
sé
hann
skráður
hjá
fyrirtækjaskrá
og
á
virðisaukaskattsskrá
og
hafi
hlutverki
að
gegna
í
keðju
aðfanga
sem
flutt
eru
til
og
frá
landinu.
Vottunin
gildir
í
fimm
ár
í
senn,
sbr.
þó
145.
gr.
b
og
145.
gr.
c.
Það
er
enn
fremur
skilyrði
VRA-vottunar
að:
- umsækjandi, stjórnendur, stjórnarmenn, starfsmenn sem bera ábyrgð á tollamálum umsækjanda eða umboðsmenn hafi ekki gerst sekir um alvarleg eða ítrekuð brot gegn ákvæðum laga þessara, annarra laga sem tollstjóra ber að framfylgja eða annarra skattalaga eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra á síðastliðnum þremur árum áður en umsókn er lögð fram, né mega sömu aðilar, á sama tímabili, hafa gerst sekir um önnur alvarleg brot sem tengjast atvinnustarfsemi umsækjanda,
- umsækjandi sýni fram á að hann hafi verið gjaldfær síðustu þrjú fjárhagsár og viðhafi og muni viðhafa ábyrga fjármálastjórn,
- umsækjandi hafi yfir að ráða reikningshalds- og aðfangakerfi sem samkvæmt mati tollstjóra gerir honum fært að viðhafa fullnægjandi tolleftirlit,
- umsækjandi hafi ákvarðað innri öryggiskröfur og vinnuferla sem teljast fullnægjandi að mati tollstjóra og ábyrgist að starfsemi hans verði hagað í samræmi við þá.
Komi til samruna lögaðilans við annan lögaðila eða skiptingar hans fellur VRA-vottunin niður án tilkynningar.
b. (145. gr. b.)
Tímabundin afturköllun.
Tollstjóra er heimilt að afturkalla VRA-vottun tímabundið í eftirfarandi tilvikum:
- Þegar viðurkenndur rekstraraðili uppfyllir ekki lengur skilyrði sem sett eru fyrir veitingu VRA-vottunar.
- Þegar rökstuddur grunur leikur á að viðurkenndur rekstraraðili, stjórnendur, stjórnarmenn, starfsmenn sem bera ábyrgð á tollamálum hans eða umboðsmenn hafi framið brot gegn ákvæðum laganna, annarra laga sem tollstjóra ber að framfylgja, annarra skattalaga eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra, eða hafi gerst sekir um önnur alvarleg brot sem tengjast atvinnustarfsemi umsækjanda, brotið varðar refsingu og líklegt þykir að mati tollstjóra að viðkomandi muni verða sóttur til sakar.
- Að fenginni beiðni lögaðila þegar viðkomandi telur sig tímabundið ófæran um að uppfylla skilyrði VRA-vottunar.
Tollstjóri ákveður tímalengd afturköllunar með hliðsjón af því að lögaðilanum gefist nægjanlegt ráðrúm til að bæta úr annmörkum. Að úrbótum loknum, sbr. þó 2. tölul. 1. mgr. 145. gr. c, veitir tollstjóri VRA-vottun að nýju.
c. (145. gr. c.)
Varanleg afturköllun.
Tollstjóra ber að afturkalla VRA-vottun í eftirfarandi tilvikum:
- Þegar viðurkenndur rekstraraðili, stjórnendur, stjórnarmenn hans, starfsmenn sem bera ábyrgð á tollamálum hans eða umboðsmenn hafa hlotið endanlegan dóm, undirgengist viðurlög, þeim verið ákveðin viðurlög eða þeir sætt stjórnsýsluviðurlögum vegna alvarlegra eða ítrekaðra brota gegn ákvæðum laganna, annarra laga sem tollstjóra ber að framfylgja, annarra skattalaga eða stjórnvaldsfyrirmæla sem sett eru á grundvelli þeirra eða fyrir önnur alvarleg brot sem tengjast atvinnustarfsemi umsækjanda.
- Þegar lögaðili sem hefur verið sviptur VRA-vottun tímabundið skv. 145. gr. b lætur hjá líða að bæta úr annmörkum sem leiddu til afturköllunarinnar innan marka tímalengdar hennar.
- Að beiðni viðurkennds rekstraraðila.
- Við gjaldþrot viðurkennds rekstraraðila.
Afturköllunin tekur gildi næsta virkan dag eftir að tollstjóri hefur sannanlega tilkynnt lögaðila um hana.
d. (145. gr. d.)
Sérstök meðferð við tollframkvæmd.
VRA-vottaðir
aðilar
skulu
njóta
sérstakrar
meðferðar
við
tollframkvæmd,
m.a.
hvað
varðar
tíðni
vöru-
og
skjalaskoðana,
forgangs
við
framkvæmd
tollskoðunar
og
heimfylgdar
vöru.
Meðferðin
skal
taka
mið
af
niðurstöðum
áhættugreiningar
tollstjóra
á
viðkomandi
lögaðila.
Tollstjóra
er
heimilt
að
haga
tolleftirliti
með
hefðbundnum
hætti
vegna
sérstakra
áhættuþátta
eða
innflutningstakmarkana
samkvæmt
öðrum
lögum.
e. (145. gr. e.)
Reglugerðarheimild.
Ráðherra
ákveður
fyrirkomulag
og
umfang
sérstakrar
meðferðar
VRA-vottaðra
aðila
með
reglugerð.
Ráðherra
er
heimilt
að
setja
með
reglugerð
nánari
reglur
um
málsmeðferð,
umsóknarferli,
skilyrði,
bakgrunnsskoðun,
veitingu
og
afturköllun
VRA-vottunar.
Í
reglugerðinni
getur
ráðherra
afmarkað
hvers
konar
fyrirtæki
teljist
hafa
hlutverki
að
gegna
í
keðju
aðfanga
sem
flutt
eru
til
og
frá
landinu.
19. gr.
Á eftir orðunum „skv. 86. gr.“ í 1. mgr. 172. gr. laganna kemur: og 180. gr. b.
20. gr.
Á eftir 180. gr. a laganna kemur ný grein, 180. gr. b, svohljóðandi:
Hafi rangar eða villandi upplýsingar verið veittar um tegund, magn eða verðmæti vöru við innflutning eða upplýsingagjöf innflytjanda hefur að öðru leyti verið svo áfátt að áhrif hafi haft við álagningu er innflytjanda skylt að greiða 50% álag til viðbótar við þá tolla og önnur aðflutningsgjöld sem honum bar með réttu að greiða. Fella skal álagið niður ef innflytjandi færir rök fyrir því að óviðráðanleg atvik hafi hamlað því að hann veitti réttar upplýsingar eða kæmi leiðréttingu á framfæri við tollstjóra. Þó skal ekki fella álagið niður ef annmarki á upplýsingagjöf á rætur sínar að rekja til aðgerða eða aðgerðaleysis tollmiðlara, seljanda eða sendanda.
21. gr.
Lög þessi öðlast gildi sem hér segir:
Ákvæði
6.–7.,
9.–12.,
16.–17.
og
20.
gr.
og
ákvæði
til
bráðabirgða
öðlast
þegar
gildi.
Ákvæði
7.,
9.,
10.
og
12.
gr.
gilda
einnig
um
brot
sem
framin
eru
fyrir
gildistöku
laga
þessara,
enda
sé
fyrningarfrestur
þeirra
ekki
hafinn.
Ákvæði
1.–5.,
8.,
13.–15.
og
18.–19.
gr.
öðlast
gildi
1.
janúar
2017.
Ákvæði
3.–5.
gr.
koma
til
framkvæmda
við
álagningu
opinberra
gjalda
2018
vegna
rekstrarársins
2017.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ráðherra skal, að höfðu samráði við þann ráðherra sem fer með málefni lögreglu og löggæslu, skipa starfshóp þar sem sitji m.a. fulltrúar frá því ráðuneyti sem fer með málefni tolla og vörugjalda, því ráðuneyti sem fer með málefni lögreglu og löggæslu, Persónuvernd, lögreglu og tollstjóra. Starfshópurinn móti tillögur um heimildir tollyfirvalda til vinnslu persónuupplýsinga. Ráðherra skal leggja fyrir Alþingi lagafrumvarp sem byggist á tillögum hópsins eigi síðar en á haustþingi 2017.
Gjört á Bessastöðum, 19. október 2016.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Bjarni Benediktsson.
A deild - Útgáfud.: 24. október 2016