Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

21. desember 2021

Útgáfudagur

10. janúar 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1731/2021

21. desember 2021

GJALDSKRÁ

fyrir fráveitu í Hafnarfjarðarkaupstað.

1. gr.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar hefur ákveðið eftirfarandi gjöld fyrir þjónustu fráveitu:

Fráveituheimæðargjald, tengigjald við fráveitu í götu*.

Þvermál lagnar DN Heimæð**
0-10 metrar
Verð á metra
umfram 10 m**
Nýbyggingarsvæði 150 mm 327.372 kr. 36.375 kr.
Nýbyggingarsvæði 200 mm 380.949 kr. 42.330 kr.
Nýbyggingarsvæði 250 mm 438.315 kr. 48.702 kr.
Gróið svæði 150 mm 424.711 kr. 48.717 kr.
Gróið svæði 200 mm 485.798 kr. 55.695 kr.
Gróið svæði 250 mm 546.881 kr. 62.733 kr.

* Miðast við þvermál lagnar og lögn frá lóðamörkum að stofnræsi, sbr. 13. gr. laga nr. 9/2009.
** Innifalið er skálplögn og regnvatnslögn, efni og vinna.

Gjaldskrá þessi er uppfærð í janúar ár hvert miðað við hækkun byggingarvísitölu.

Þegar leggja á skólplögn skal alltaf leggja regnvatnslögn með.

2. gr.

Fráveitugjald er lagt á fasteignir samanber 14. gr. laga nr. 9/2009 og nemur 0,116% af heildarfasteignamati íbúðarhúsnæðis og 0,116% af öðru húsnæði. Gjalddagar fráveitugjalds eru þeir sömu og fasteignaskatts.

Tengigjald er greitt fyrir fram.

3. gr.

Ef gera þarf sérstakar ráðstafanir vegna hæðar eða legu mannvirkis, svo og ef húsbyggjandi velur að óska eftir fleiri tengingum fellur tilfallandi viðbótarkostnaður vegna þessa á viðkomandi fasteign.

4. gr.

Ef viðkomandi lóðarhafi nýtir sér ekki þegar gerðar tengingar er heimilt að krefja hann um gjald fyrir aftengingu ónýttra lagna sem nemur kostnaði við þá framkvæmd.

5. gr.

Gjaldskrá þessi var samþykkt í bæjarráði 2. desember 2021 og í bæjarstjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar 8. desember 2021. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 27/2019.

Hafnarfirði, 21. desember 2021.

Sigurður Nordal sviðsstjóri stjórnsýslusviðs.

B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2022

Tengd mál