Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjarðabyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Byggingarmál, Fjarðabyggð, Mannvirki

Undirritunardagur

30. nóvember 2018

Útgáfudagur

19. desember 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1176/2018

30. nóvember 2018

GJALDSKRÁ

skipulags- og byggingarmála í Fjarðabyggð.

1. gr. Byggingarleyfisgjöld.

1.1 Byggingarleyfi og gjald vegna tilkynningarskyldra bygginga.
Byggingarleyfisgjaldi vegna nýbyggingar stærri en 15 m² er skipt í fast gjald og gjald fyrir hvern rúmmetra byggingar.
Innifalið í gjaldinu er lögboðin meðferð byggingarleyfisskyldra erinda, lóðarblað, yfirferð teikninga, útsetning lóðar og byggingarreits húss, öryggis- og lokaúttekt (eitt skipti á hvora) og eftirlit byggingarfulltrúa skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Rúmmetragjald fyrir byggingar stærri en 15 m² 189 kr./m³
Byggingar 15-60 m² 97.256 kr.
Byggingar stærri en 60 m² 170.195 kr.
Viðbyggingar – sólstofur, bílgeymslur, garðhús 15-25 m² 21.883 kr.
Viðbyggingar – sólstofur, bílgeymslur, garðhús 25-60 m² 34.039 kr.
Viðbyggingar stærri en 60 m², 170.198 kr.
sama leyfisgjald og fyrir húsið sem byggt er við
Sumarbústaðir og gripahús 15-60 m² 41.333 kr.
Sumarbústaðir og gripahús stærri en 60 m² 82.671 kr.
Yfirferð teikninga og umsýsla (undanþegin leyfisgjaldi í lið 1.1) 12.157 kr./klst.
Vinna byggingarfulltrúa (t.d. ef vinna fer fram úr innheimtu leyfisgjaldi) 12.157 kr./klst.
Gjöld vegna aðkeyptrar yfirferðar séruppdrátta samkvæmt reikningi
Meiri háttar framkvæmdir undanþegnar hefðbundinni gjaldtöku 40.263 kr.
Niðurrif mannvirkja 20.065 kr.
Endurnýjun byggingarleyfis 12.157 kr.
Breyting á skráningu byggingar 24.314 kr.
Lágmarksgjald vegna móttöku byggingarleyfisumsóknar 12.157 kr.
Greiða skal byggingarleyfisgjald fyrir hverja byggingarleyfisumsókn sem tekin er til umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Gjöld skv. 1. gr. eru óendurkræf þótt lóðarúthlutun og byggingarleyfi falli úr gildi.
1.2 Gjöld vegna stöðuleyfa.
Stöðuleyfisgjöld eru miðuð við hvern fermetra lausafjármunar. Lágmarksviðmunarstærð stöðuleyfisgjalda er miðuð við 15 m². Gjald miðar við útgáfu stöðuleyfis fyrir hvern lausafjármun. Stöðuleyfi eru að hámarki veitt til 12 mánaða í senn.
Stöðuleyfisgjald lausafjármuna 2.024 kr./m²
Leigugjald á skipulögðum ómalbikuðum gámasvæðum 1.013 kr./m²
Leigugjald á skipulögðum malbikuðum gámasvæðum 2.024 kr./m²

2. gr. Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

2.1 Leyfisveitingar og úttektir.
Aðrar leyfisveitingar, úttektir og vottorð (vínveitingaleyfi,
húsaleiguúttektir, umsagnir vegna rekstrarleyfa o.fl.) 24.315 kr.
Úttektir vegna byggingarstjóraskipta 24.315 kr.
Úttektir vegna meistaraskipta 24.315 kr.
Stöðuúttektir (undanþegnar leyfisgjaldi í lið 1.1) 24.315 kr.
Lágmarksgjald vegna annarra leyfisveitinga 12.157 kr.
2.2 Afgreiðslur.
Afgreiðsla eignaskiptayfirlýsinga 24.315 kr.
Breyting á lóðarleigusamningi að beiðni lóðarhafa 24.315 kr.
Fyrir að útvega teikningar, 1. blað 586 kr.
Fyrir að útvega teikningar fleiri en eina – hvert blað 119 kr.
(sama gjald fyrir teikningar á rafrænu formi)
Umsýslugjald vegna lóðarúthlutunar 44.493 kr.
Umsýslugjald vegna stofnunar lóðar 24.315 kr.
Umsýslugjald vegna útsetningar lóðarmarka að beiðni lóðarhafa 12.157 kr.
Efnistökuleyfi 31.643 kr.
Lágmarksgjald vegna annarra afgreiðslna 12.157 kr.

3. gr. Meginreglur vegna breytinga á aðal- og/eða deiliskipulagi.

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

Ef kostnaður vegna vinnu skipulags- og byggingarfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er, vegna umfangs, verulega umfram viðmiðunargjald verksins er heimilt að leggja á til viðbótar tímagjald skipulags- og byggingarfulltrúa sem er 12.157 kr./klst. eða gjald skv. reikningi.

Skilgreiningar:

Umsýslu- og auglýsingakostnaður: kostnaður sveitarfélagsins við afgreiðslu umsóknar, birtingar auglýsinga og annarrar umsýslu.

Breytingarkostnaður: kostnaður sem fellur til innan sveitarfélagsins við gerð nýs deiliskipulags eða breytingar á gildandi aðal- eða deiliskipulagsuppdrætti.

3.1 Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga skv. tilgreindum ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010.
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr., viðmiðunargjald 140.497 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. 140.497 kr.
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 36. gr., viðmiðunargjald 81.967 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. 65.043 kr.
3.2 Kostnaður vegna deiliskipulags skv. tilgreindum ákvæðum skipulagslaga nr. 123/2010.
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. aðkeypt vinna skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. 140.497 kr.
Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. aðkeypt vinna skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga,
sbr. 1. mgr. 43. gr. 140.497 kr.
Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti,
sbr. 2. mgr. 43. gr.
aðkeypt vinna skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga,
sbr. 2. mgr. 43. gr. 65.043 kr.
3.3 Kostnaður vegna grenndarkynningar.
Grenndarkynning 24.315 kr.
3.4 Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðmiðunargjald 140.497 kr.
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir 58.530 kr.
Framkvæmdaleyfi – aðrar minni framkvæmdir 24.315 kr.
Eftirlit umfram eina ferð, sem er innifalin í framkvæmdaleyfisgjaldi 12.157 kr.
Lágmarksgjald vegna annars kostnaðar við leyfisveitingar 12.157 kr.

4. gr. Einingarverð og gildistaka.

Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari taka breytingum mánaðarlega í samræmi við breytingu byggingarvísitölu í október 2018. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 51. og 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast gildi 1. janúar 2019. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1145/2017.

Fjarðabyggð, 30. nóvember 2018.

Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 19. desember 2018

Tengd mál