Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

23. september 2021

Útgáfudagur

7. október 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1131/2021

23. september 2021

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Bláskógabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:

Deiliskipulag, Árbúðir, fjallaskáli.
Í deiliskipulaginu felst að skilgreind er um 2 ha lóð fyrir hálendismiðstöð. Þar eru fyrir 87 m² gistiskáli, 85 m² sölu- og veitingaskáli, 95 m² hesthús, um 20 m² starfsmannahús og um 15 m² hús fyrir salerni og sturtu.
Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að stækka megi núverandi gistiskála um 100 m² auk byggingar þriggja nýrra gistiskála, allt að 100 m² hver. Gisting getur verið fyrir allt að 70 gesti. Heildarbyggingarmagn getur verið allt að 700 m².
Samþykkt í sveitarstjórn 16. september 2021.

Deiliskipulag, Geldingafell, fjallaskáli.
Í deiliskipulaginu felst að skilgreindar eru tvær um 2 ha lóðir fyrir gisti- og veitingaaðstöðu og tengda starfsemi. Innan svæðisins eru nú sjö byggingar með aðstöðu fyri gesti og starfsfólk og búnað fyrir þjónustu og ferðamenn, m.a. vélsleðaferðir á Langjökul. Á hvorri lóð verður heimild fyrir allt að fimm byggingum, samtals 700 m² á hvorri lóð. Jafnframt er á hvorri lóð gert ráð fyrir gistiaðstöðu fyrir allt að 25 manns, veitingaaðstöðu og aðstöðu fyrir ýmiss konar búnað.
Samþykkt í sveitarstjórn 16. september 2021.

Deiliskipulag, Hryggholt, L210675.
Í deiliskipulaginu felst skilgreining byggingarheimilda og notkunar innan landsins. Gert er ráð fyrir að á svæðinu verði byggð bæjartorfa með minniháttar búrekstri s.s. hrossarækt og ylrækt. Auk þess er gert ráð fyrir ferðaþjónustu og skógrækt.
Samþykkt í sveitarstjórn 6. maí 2021.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 23. september 2021.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.

B deild - Útgáfud.: 7. október 2021

Tengd mál