Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Vesturbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Barðastrandarsýslur

Undirritunardagur

8. maí 2026

Útgáfudagur

15. maí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 489/2026

8. maí 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Vesturbyggð.

Óveruleg breyting á deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar.

Heimastjórn Tálknafjarðar samþykkti á fundi sínum 7. maí 2026 breytingu deiliskipulagi Tálknafjarðarhafnar. Breytingin fjallar um að skilgreind er ný lóð. Stærð lóðar verður 1.086 m². Innan lóðar er heimilt að reisa byggingu 455 m² að stærð. Vegi á hafnarsvæði er hliðrað aðeins þannig að hann samsvari núverandi legu. Til samræmis er byggingarreitur og lóð Strandgötu 29 minnkuð úr 5.752 m² í 4.872 m². Lóð fyrir þvottaplan minnkar úr 553 m² í 483 m². Lóðin mun fá staðfangið Hafnarstræti 3. Tillagan var grenndarkynnt með athugasemdafresti til 9. apríl 2026.

Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

Patreksfirði, 8. maí 2026.

Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 15. maí 2026

Tengd mál

Stjórnartíðindi