Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarráðuneytið (2011-2018)
Málaflokkur
Heilbrigðismál, Sjúkratryggingar
Undirritunardagur
18. nóvember 2016
Útgáfudagur
30. nóvember 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1037/2016
18. nóvember 2016
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1266/2007 um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar ríkisins vegna kostnaðar sjúkratryggðra barna yngri en 18 ára við þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga.
1. gr.
Í stað orðanna „Tryggingastofnunar ríkisins“ í 1. mgr. 1. gr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarmynd: Sjúkratryggingar Íslands.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. reglugerðarinnar:
- Á eftir orðinu „heilbrigðisstarfsmanna“ í 2. tölul. og 4. tölul. kemur: eða barnageðlæknis.
- Á eftir orðinu „teymisins“ í 3. og 4. málsl. 4. tölul. kemur: eða barnageðlæknis.
- Á eftir orðinu „Teymið“ í 5. málsl. 4. tölul. kemur: eða barnageðlæknir.
3. gr.
Heiti reglugerðarinnar breytist og verður: Reglugerð um greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands vegna kostnaðar sjúkratryggðra barna yngri en 18 ára við þjónustu sjálfstætt starfandi sálfræðinga.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 22. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. desember 2016.
Velferðarráðuneytinu, 18. nóvember 2016.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra.
Vilborg Ingólfsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2016