Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Útlendingar, Landamæri

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

11. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 670/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um komu- og brottfararkerfið, nr. 1056/2025

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Starfsfólk skimunaryfirvalda, sem skilgreint er í 1. mgr. 5. gr. reglugerðar um skimun ríkisborgara þriðju ríkja nr. 667/2026 og hefur tilskilda heimild, skal hafa aðgang að komu- og brottfararkerfinu til að fletta upp í gögnum þess við framkvæmd skimunar.

2. gr.

Í stað fylgiskjals 1 við reglugerðina kemur nýtt fylgiskjal 1, reglugerð (ESB) 2017/2226, með áorðnum breytingum, sem birt er með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í h-lið 1. mgr. 23. gr. laga um landamæri, nr. 136/2022, og 5. tölul. 1. mgr. 120. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, og öðlast þegar gildi.

Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild — Útgáfudagur: 11. júní 2026

Tengd mál