Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Velferðarsvið Reykjavíkur
Málaflokkur
Reykjavík, Félagsmál
Undirritunardagur
1. desember 2025
Útgáfudagur
16. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1384/2025
1. desember 2025
GJALDSKRÁ
velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir stuðningsþjónustu í formi þrifa.
1. gr. Fjárhæð gjalds.
Gjald vegna stuðningsþjónustu í formi þrifa á heimili er eftirfarandi fyrir hvert skipti:
| Skýring | Fjárhæð kr. |
| Þrep 1 – léttari þrif | 1.715 |
| Þrep 2 – umfangsmeiri þrif | 3.430 |
Þjónusta í formi þrifa sem er umfram fjögur skipti á mánuði á hvert heimili er endurgjaldslaus.
2. gr. Undanþága frá greiðslu/lækkun greiðslu.
Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir notendur sem einungis hafa tekjur samkvæmt framfærsluviðmiði Tryggingastofnunar ríkisins eða þar undir.
Þeir notendur stuðningsþjónustu sem hafa tekjur umfram tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins eða samsvarandi fjárhæð greiða aldrei hærri upphæð fyrir þjónustu en sem nemur 50% af umframtekjum.
3. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett á grundvelli 2. mgr. 25. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, og 40. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
Gjaldskrá þessi öðlast gildi 1. janúar 2026 og fellur þá jafnframt úr gildi gjaldskrá sama efnis, nr. 1387/2024.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. desember 2025.
Heiða Björg Hilmisdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025