Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Reykjavík, Umferðarmál
Undirritunardagur
3. maí 2016
Útgáfudagur
27. maí 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 441/2016
3. maí 2016
GJALDSKRÁ
fyrir bílastæðagjald í Reykjavík.
1. gr. Gildissvið.
Gjaldskrá þessi gildir um greiðslu bílastæðagjalds í Reykjavík. Bílastæðagjöld skulu renna í bílastæðasjóð Reykjavíkurborgar og skal honum varið til uppbyggingar almenningsbílastæða.
2. gr. Gjaldflokkar.
Bílastæðagjald greiðist fyrir þann fjölda bílastæða sem á skortir til að uppfylltar séu kröfur um fjölda bílastæða samkvæmt deiliskipulagi sbr. 19. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglum þeim sem Reykjavíkurborg hefur sett sér um bílastæði.
Gjaldið nemur áætluðum kostnaði við gerð almennra bílastæða og er kr. 1.850.000 fyrir hvert bílastæði. Fjárhæð bílastæðagjalds er miðuð við byggingarvísitölu 123,0 stig.
Bílastæðagjald samkvæmt gjaldskrá þessari breytist til hækkunar eða lækkunar í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu.
3. gr. Ákvörðun bílastæðagjalds.
Við ákvörðun bílastæðagjalds skal fjöldi bílastæða reiknast með einum aukastaf.
4. gr. Greiðsla bílastæðagjalds.
Embætti byggingarfulltrúa leggur á bílastæðagjald við samþykkt byggingarleyfis. Bílastæðagjald skal greitt áður en byggingarleyfi er gefið út. Vanskil á greiðslu gjaldsins veitir embætti byggingarfulltrúa heimild til að synja um úttektir og útgáfu vottorða fyrir viðkomandi mannvirki. Gjaldinu fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallnar greiðslur með fjárnámi skv. 19. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Heimilt er að synja endurgreiðslu bílastæðagjalds ef liðið er meira en eitt ár frá greiðslu þess. Gildir einu þótt byggingarleyfi falli úr gildi eða sé fellt úr gildi. Sama gildir ef notkun húss er breytt þannig að kröfur um fjölda bílastæða vegna þess séu minni en voru vegna fyrri notkunar þess.
5. gr. Gildistaka.
Gjaldskrá þessi, sem sett er skv. heimild í 19. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með síðari breytingum, og samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur 3. maí 2016, öðlast þegar gildi og fellur þá úr gildi gjaldskrá fyrir bílastæði í Reykjavík nr. 337/2003.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 3. maí 2016.
Dagur B. Eggertsson.
B deild - Útgáfud.: 27. maí 2016