Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Hafnamál, Siglingar - skip

Undirritunardagur

7. nóvember 2018

Útgáfudagur

21. nóvember 2018

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1011/2018

7. nóvember 2018

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 816/2011, um hafnarríkiseftirlit, með síðari breytingum.

1. gr.

Eftirfarandi töluliðir bætast við IV. viðauka reglugerðarinnar:

  1. [Hér á að vera eyða, sjá þó 28. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 um endurvinnslu skipa og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og tilskipun 2009/16/EB.]
  2. Samræmingarskjal sem gefið er út í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 frá 29. apríl 2015 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum og um breytingu á tilskipun 2009/16/EB.

2. gr. Innleiðing á EES-gerðum.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á 25. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/757 frá 29. apríl 2015 um vöktun, skýrslugjöf og sannprófun á losun koltvísýrings frá sjóflutningum og um breytingu á tilskipun 2009/16/EB.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 14. gr., sbr. 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 7. nóvember 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Björn Freyr Björnsson.

B deild - Útgáfud.: 21. nóvember 2018

Tengd mál