Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Útlendingar
Undirritunardagur
1. mars 2026
Útgáfudagur
6. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 12/2026
1. mars 2026
LÖG
um breytingu á lögum um útlendinga, nr. 80/2016 (afturköllun alþjóðlegrar verndar).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
2. málsl. 2. mgr. 35. gr. a laganna fellur brott.
2. gr.
C-liður 2. mgr. 40. gr. laganna orðast svo: flóttamann ef gildar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.
3. gr.
Í stað orðanna „skv. 40. eða 41. gr. er heimilt að veita útlendingi bráðabirgðadvalarleyfi skv. 77. gr.“ í 4. mgr. 42. gr. laganna kemur: skv. 40., 41. eða 4. mgr. 48. gr. er heimilt að veita útlendingi tímabundið dvalarleyfi skv. 77. gr. a.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 48. gr. laganna:
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að afturkalla veitingu alþjóðlegrar verndar ef gildar ástæður eru til að álíta útlending hættulegan öryggi ríkisins, hann hefur hlotið endanlegan dóm fyrir alvarlegt afbrot og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu eða hann hefur verið dæmdur fyrir ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi. - Í stað 2. málsl. 4. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Séu aðstæður þannig að 1. mgr. 42. gr. eigi við er heimilt að veita útlendingi tímabundið dvalarleyfi skv. 77. gr. a. Við afturköllun alþjóðlegrar verndar skv. e- eða f-lið 1. mgr. skal stjórnvald taka til athugunar hvort veita eigi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Við afturköllun alþjóðlegrar verndar fellur útgefið dvalarleyfi og atvinnuleyfi útlendings úr gildi.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 74. gr. laganna:
- 2. og 3. mgr. og 1. málsl. 4. mgr. falla brott.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ákvæði XII. kafla gilda um handhafa dvalarleyfis samkvæmt ákvæði þessu.
6. gr.
3. mgr. 77. gr. laganna fellur brott.
7. gr.
Á eftir 77. gr. laganna kemur ný grein, 77. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Umborin dvöl.
Ef aðstæður eru þannig að 1. mgr. 42. gr. eigi við en viðkomandi er undanskilinn alþjóðlegri vernd skv. 40., 41. eða 4. mgr. 48. gr. er heimilt að veita útlendingi tímabundið dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu. Í þeim tilvikum er heimilt að binda leyfið sérstökum skilyrðum sem nauðsynleg þykja eftir atvikum, t.d. heimild til þess að undanskilja rétt útlendings til að sækja um tímabundið atvinnuleyfi og krefjast þess að viðkomandi sinni tilkynningarskyldu eða haldi sig á tilteknum stað skv. 114. gr. eða gangist undir önnur þvingunarúrræði skv. XIII. kafla.
Heimilt er að veita dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu þótt ekki sé fullnægt öllum skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr.
Dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu skal að jafnaði ekki veitt til lengri tíma en sex mánaða. Heimilt er að endurnýja dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu í allt að eitt ár í senn samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar.
Ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru, viðeigandi ákvæði I. kafla laga þessara og ákvæði þessa kafla gilda ekki um ákvörðun um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu. Dvalarleyfið hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð.
Dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu getur ekki verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis.
8. gr.
Í stað „og 77. gr.“ í 1. málsl. 5. mgr. 78. gr. laganna kemur: 77. og 77. gr. a.
9. gr.
Á eftir 1. mgr. 118. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Við meðferð mála samkvæmt lögum þessum er heimilt að halda gögnum og upplýsingum frá aðila máls ef slíkt telst nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna, þjóðaröryggis, alþjóðasamskipta ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu eða annarra sérstakra ástæðna.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. gildir ákvæði a-liðar 5. gr. ekki um meðferð umsókna sem hafa náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. við gildistöku laga þessara.
11. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Handhafar dvalarleyfis skv. 2. mgr. 74. gr. skulu fá útgefið dvalarleyfi skv. 78. gr. við lok gildistíma dvalarleyfis samkvæmt umsókn. Viðkomandi skal þó uppfylla skilyrði a-liðar 1. mgr. 55. gr. um framfærslu og ekki eiga ólokin mál í refsivörslukerfinu þar sem hann er grunaður eða sakaður um refsiverða háttsemi. Hið sama á við ef útlendingur afplánar fangelsisrefsingu eða bíður afplánunar. Ekki skal tekið gjald fyrir afgreiðslu fyrstu umsóknar um dvalarleyfi samkvæmt ákvæði þessu þrátt fyrir ákvæði 7. tölul. 3. mgr. 14. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.
12. gr.
Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002: Á eftir orðunum „dvalarleyfi fyrir foreldra“ í a-lið 1. mgr. 11. gr. laganna kemur: dvalarleyfi vegna umborinnar dvalar.
Gjört á Bessastöðum, 1. mars 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 6. mars 2026