Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Sveitarstjórnarmál, Tekjustofnar sveitarfélaga
Undirritunardagur
26. mars 2021
Útgáfudagur
30. mars 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 22/2021
26. mars 2021
LÖG
um breytingu á ýmsum lögum tengdum málefnum sveitarfélaga (sveitarfélög og kórónuveirufaraldur).
Forseti
Íslands
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI Breyting á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 131. gr. laganna:
-
Á
undan
1.
mgr.
kemur
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Ráðherra getur ákveðið, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, að sveitarstjórn sé heimilt að víkja frá skilyrðum 14.–18. gr., 5. mgr. 35. gr., 1. og 2. mgr. 40. gr., 1. og 2. mgr. 42. gr., samþykktum um stjórn sveitarfélags og/eða lögákveðnum frestum sem getið er um í lögum þessum, til að tryggja starfhæfi hennar og til að auðvelda ákvarðanatöku vegna neyðarástands. - Í stað tilvísunarinnar „1. mgr.“ í 2. mgr. kemur: 1. og 2. mgr.
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Neyðarástand í sveitarfélagi.
2. gr.
Í stað ártalsins „2022“ í ákvæði til bráðabirgða VII í lögunum kemur: 2025.
II. KAFLI Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995.
3. gr.
Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
a. (XXII.)
Þrátt fyrir ákvæði 7. gr. fylgir fasteignaskatti skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., vegna áranna 2020–2022, lögveð í fasteign þeirri sem hann er lagður á, ásamt dráttarvöxtum í fjögur ár frá gjalddaga, sem skal ganga fyrir öllum öðrum veðkröfum er á eigninni hvíla.
b. (XXIII.)
Þrátt fyrir ákvæði 32. gr. er sveitarfélögum heimilt að lækka eða fella niður dráttarvexti á kröfur vegna fasteignaskatta sem lagðir eru á skv. c-lið 3. mgr. 3. gr., á árunum 2020–2022, hjá gjaldendum sem eiga við verulega rekstrarörðugleika að stríða vegna kórónuveirufaraldursins eða gjaldendum sem leigja húsnæði til rekstraraðila sem sömu skilyrði eiga við um, á grundvelli reglna sem sveitarfélög setja sér.
III. KAFLI Breyting á lögum um stofnun opinbers hlutafélags
um Lánasjóð sveitarfélaga, nr. 150/2006.
4. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 1. mgr. 3. gr. skal Lánasjóði sveitarfélaga heimilt að veita lán til að mæta rekstrarhalla sveitarfélaga, auk rekstrarhalla stofnana og fyrirtækja þeirra sem sinna lögmæltum verkefnum og ekki eru í samkeppnisrekstri, á reikningsárunum 2020–2022.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 26. mars 2021.
Guðni
Th.
Jóhannesson.
(L.
S.)
Sigurður Ingi Jóhannsson.
A deild - Útgáfud.: 30. mars 2021