Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Landbúnaðarháskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. maí 2025

Útgáfudagur

23. október 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1100/2025

13. maí 2025

REGLUR

um gjaldskrá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Samkvæmt 24. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 er Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) heimilt að afla sér tekna til viðbótar við framlög á fjárlögum. Háskólaráði ber að setja nánari reglur um gjaldtöku og ráðstöfun gjalda og eru þessar reglur gerðar í samræmi við það.

1. Skrásetningargjald LbhÍ.

Háskólanám 75.000 kr.
Háskólanám, öryrki og nýskráning á vormisseri 55.000 kr.
Starfsmenntanám 50.000 kr.
Greiðsla fyrir umsóknir (nemendur utan ESB) 8.000 kr.
  1. Skrásetningartímabil og greiðslur.
    Greiðslukrafa vegna skrásetningargjalds birtist í netbanka umsækjanda þegar umsókn hefur verið samþykkt. Eindagi skrásetningargjalds er 10. júlí bæði fyrir nýnema og eldri nema og lýkur skrásetningartímabili þann dag. Með greiðslu skrásetningargjalds staðfestir umsækjandi skólavist við LbhÍ. Óski viðkomandi eftir að greiða eftir þann tíma reiknast 15% álag á gjaldið og hafi það ekki verið greitt 10. ágúst er litið svo á að viðkomandi hyggist ekki stunda nám við LbhÍ á komandi skólaári.
    Nemandi í háskólanámi sem fengið hefur heimild til að hefja nám á vormisseri þarf að greiða 55.000 kr. um miðjan desember, samkvæmt nánari ákvörðun rektors.
  2. Alþjóðlegir nemar sem samþykktir hafa verið sem skiptinemar í gegnum áætlanir Nordplus, Erasmus og North2North, eða frá skólum sem eru með tvíhliða samninga við LbhÍ, eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds við LbhÍ hafi þeir greitt skrásetningargjald við sinn heimaskóla.
  3. Samþykktir gestanemendur frá opinberum háskólum á Íslandi eru undanþegnir greiðslu skrásetningargjalds hafi þeir greitt skrásetningargjald við sinn skóla.
  4. Skrásetningargjald er ekki endurgreitt ef nemandi hættir námi.
  5. Ef nemandi getur ekki stundað námið vegna veikinda getur hann fengið 75% gjaldsins endurgreitt fyrir 30. september og þá gegn framvísun læknisvottorðs þess efnis.
  6. Skrásetningargjaldið er bókfært hjá yfirstjórn háskólans í samræmi við fjárlög. Háskólaráð ráðstafar skrásetningargjaldi á þá kostnaðarliði, sem falla undir gjaldið lögum samkvæmt.

2. Gjaldskrá vegna sölu vöru og þjónustu.

Leiga á fundaaðstöðu m.v. 4 klst.  
Ársalur, Hvanneyri 60 sæti 26.000 kr.
Skólastofur 20-40 sæti 20.000 kr.
Skólastofur 12-18 sæti 14.000 kr.
Salur 100 sæti 35.000 kr.
Efnisgjald.  
Búfræði pr. önn 20.000 kr.
Nemendur í áfanganum búsmíði greiða sérstaklega efnisgjald,  
misjafnt eftir eðli verkefna  
Nemendakort – aðgangskort 1.500 kr.
Vottorð.  
Vottorð til nemenda 500 kr.
Námsferilsskrá 2.000 kr.
Eldri brautskráningarskírteini (fyrir árið 2000) 2.500 kr.
Próftökugjöld.  
Endurtökupróf 6.000 kr.
Próftökugjald vegna prófa/námsmats fjarnema í háskólanámi 6.000 kr.
Hestamiðstöðin á Miðfossum.  
Hesthúspláss.  
Mánaðargjald pr. hross með fóðri og aðgangi að reiðhöll 36.000 kr.
Sólarhringsgjald 2.000 kr.
Skammtímavistun án gjafar 1.400 kr.
Hagaganga.  
Hagaganga hrossa með aðgangi að inni- og útiaðstöðu 8.600 kr.
(gerðum, hnakkageymslu, járningar- og þvottaaðstöðu)  
Hagaganga hrossa pr. mánuð 1. júní – 30. nóvember 3.500 kr.
Hagaganga/útifóðrun hrossa pr. mánuð 1. desember – 31. maí 11.700 kr.
Reiðhöll.  
Aðgangur utanaðkomandi að reiðhöll pr. klst. 1.400 kr.
Leiga á reiðhöll 1 klst. 10.600 kr.
Leiga á reiðhöll 8-12 klst. 60.000 kr.

Rannsóknastofur og tæki LbhÍ.

Almennt aðstöðugjald að rannsóknastofum.

Eigin rannsóknir háskólans.

Fastir starfsmenn skólans og nemendur þeirra hafa ókeypis aðgang að öllum rannsóknastofum skólans til að sinna rannsóknum sem eru formlega á vegum skólans og innan rannsóknaskyldu akademískra starfsmanna/sérfræðinga og kennara. Það á einnig við nemendur sem eru skráðir í nám við skólann, óháð skólastigi, sem vinna að verkefnum tengdum beint við nám þeirra.

Það krefst þó alltaf að fyrst sé leyfis aflað hjá umsjónarmanni rannsóknastofu/innviða, sem getur sett aðganginum skorður og forgangsraðað aðgangi að tækjum og aðstöðu.

Hins vegar skal sá vinnutími sem fer í það hjá umsjónarmönnum að sinna slíkum rannsóknatengdum erindum, úrvinnslu sýna eða framkvæma mælingar fyrir þau skrást í verkefnabókhald skólans á viðkomandi verkefnisnúmer, með samþykki ábyrgðarmanns hvers verkefnis/deildarforseta.

Samstarfsverkefni LbhÍ og annarra stofnana/fyrirtækja.

Starfsmenn annarra stofnana eða fyrirtækja sem vinna í sameiginlegum verkefnum með LbhÍ sem fá aðgang að rannsóknastofum eða innviðum skólans greiða hlutaaðstöðugjald fyrir notkunina. Þetta á einnig við framhaldsnema við aðra háskóla sem starfsmenn LbhÍ leiðbeina: 6.000 kr./dag eða 40 evrur/dag.

Aðrir utanaðkomandi aðilar.

Aðrir utanaðkomandi aðilar geta fengið aðgang að rannsóknastofum og innviðum með leyfi deildarforseta og vísindaráðs og greiða fullt aðstöðugjald fyrir notkunina: 12.000 kr./dag eða um 80 evrur/dag.

Einstaka rannsóknatæki með rekstrargjaldi.

Að auki kemur til kostnaður vegna einstakra kostnaðarsamra rannsóknatækja, upp í viðhalds- og rekstrarkostnað þeirra.

Jarðvegsrannsóknastofa Keldnaholti.

Kúlumölunartæki.

Aðgangur starfsmanns eða nemenda að kúlumölunartæki: 100 kr./sýni.1

Aðkeypt kúlumölun innan LbhÍ: 100 kr./sýni og vinnutími umsjónarmanns færist á viðkomandi verkefni.

CN-efnagreiningartæki.2

Efnagreining á CN í jarðvegs- eða gróðursýnum innan LbhÍ, 4.000 kr./sýni.

Efnagreining á CN í jarðvegs- eða gróðursýnum fyrir utanaðkomandi aðila, 6.500 kr./sýni.

pH mælingar.

Aðgangur starfsmanns LbhÍ eða nemenda að tækjum: 100 kr./sýni.3

Aðkeypt pH mæling innan LbhÍ: 100 kr./sýni og vinnutími umsjónarmanns færist á viðkomandi verkefni.

Aðkeypt pH mæling fyrir utanaðkomandi aðila: 170 kr./sýni og vinna umsjónarmanns samkvæmt útseldum taxta LbhÍ.

Færanleg rannsóknartæki.

LiCOR 6800 ljóstillífunartæki.4

Eignarhald: LbhÍ og Svarmi og Mógilsá/LOGS (FutureArctic verkefnið).

Umsjón og ábyrgð: LbhÍ.5

Samstarfssamningur um tækin kveður á um:

Innviðirnir eru í sameiginlegri eigu samstarfsstofnananna, en eru hýstir við eina stofnun og notkun þeirra og afnot annarra eru á ábyrgð eins faglegs umsjónarmanns.

LI6800 verður hýst við LbhÍ og rekstur þess, útlán og viðhald er á ábyrgð skólans.

Rannsóknaverkefnið Future Arctic (2019-2024) og doktorsnemar þess hafa forgang á notkun tækjanna, svo lengi sem það varir. Það verkefni þarf ekki að greiða afnotagjald fyrir notkun á tækjunum.

Þegar innviðurinn er notaður til annarra verkefna þá skal innheimt af innviðunum gjald sem renna skal til umsjónaraðila upp í viðhalds- og rekstrarkostnað við innviðinn.

Afnotagjald fyrir LI6800 er 25.000 kr./dag á verðlagi ársins 2020.

Dual Camera (á dróna).6

Eignarhald: LbhÍ og Svarmi og Mógilsá/LOGS (FutureArctic verkefnið).

Umsjón og ábyrgð: Svarmi ehf.7

Samstarfssamningur um tækin kveður á um:

Innviðirnir eru í sameiginlegri eigu samstarfsstofnananna, en eru hýstir við eina stofnun og notkun þeirra og afnot annarra eru á ábyrgð eins faglegs umsjónarmanns.

Dual Camera verður hýst hjá Svarma ehf. og rekstur hennar, útlán og viðhald er á ábyrgð fyrirtækisins.

Rannsóknaverkefnið Future Arctic (2019-2024) og doktorsnemar þess hafa forgang á notkun tækjanna, svo lengi sem það varir. Það verkefni þarf ekki að greiða afnotagjald fyrir notkun á tækjunum.

Þegar innviðurinn er notaður til annarra verkefna þá skal innheimt af innviðunum gjald sem renna skal til umsjónaraðila upp í viðhalds- og rekstrarkostnað við innviðinn.

Afnotagjald fyrir Dual Camera er 5.000 kr./dag á verðlagi ársins 2020.

EGM5 Portable CO2 Gas Analyzer.8

Eignarhald: LbhÍ.

Umsjón og ábyrgð: LbhÍ.9

Samstarfssamningur um tækin kveður á um:

Innviðirnir eru í sameiginlegri eigu samstarfsstofnananna, en eru hýstir við eina stofnun og notkun þeirra og afnot annarra eru á ábyrgð eins faglegs umsjónarmanns.

Rekstur tækisins, útlán og viðhald er á ábyrgð LbhÍ.

Þegar innviðurinn er notaður til rannsóknaverkefna á vegum LbhÍ skal innheimt afnotagjald upp á 5.000 kr./dag á verðlagi ársins 2025 sem renna skal til umsjónaraðila upp í viðhalds- og rekstrarkostnað við innviðinn.

Þegar innviðurinn er notaður af utanaðkomandi aðilum skal innheimt afnotagjald upp á 10.000 kr./dag á verðlagi ársins 2025 sem renna skal til umsjónaraðila upp í viðhalds- og rekstrarkostnað við innviðinn.

3. Lagastoð og gildistaka.

Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði 13. maí 2025, eru settar með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 39. gr. reglna fyrir Landbúnaðarháskóla Íslands, nr. 1790/2024. Reglurnar öðlast þegar gildi. Um leið falla fyrri reglur um gjaldskrá Landbúnaðarháskóla Íslands, nr. 1468/2022, brott.


1 Nemendur skólans sem ekki hafa rannsóknastyrki til verkefna sinna geta sótt um undanþágu á þessu afnotagjaldi til deildarforseta.
2 Hér gildir einnig sérstakur samstarfssamningur við Land og skóg.
3 Nemendur skólans sem ekki hafa rannsóknastyrki til verkefna sinna geta sótt um undanþágu á þessu afnotagjaldi til deildarforseta.
4 LI6800 Portable Photosynthesis System with Fluorometer including 6800-01A FultipPhase Flash Fluorometer and Chamber and other standard accessories LiCor Inc. Verðmæti 9 milljónir kr. + VSK.
5 Þeir utanaðkomandi aðilar sem fá afnot af innviðunum hjá umsjónarmönnum taka jafnframt fulla fjárhagslega ábyrgð á öllum viðgerðum sem reynast nauðsynlegar ef innviðurinn skemmist í meðförum þeirra.
6
 Dual Camera Full Kit MicaSense. Verðmæti 1,5 milljónir kr. + VSK.
7 Þeir utanaðkomandi aðilar sem fá afnot af innviðunum hjá umsjónarmönnum taka jafnframt fulla árhagslega ábyrgð á öllum viðgerðum sem reynast nauðsynlegar ef innviðurinn skemmist í meðförum þeirra.
8 Verðmæti 3 milljónir kr. með VSK.
9 Þeir utanaðkomandi aðilar sem fá afnot af innviðunum hjá umsjónarmönnum taka jafnframt fulla árhagslega ábyrgð á öllum viðgerðum sem reynast nauðsynlegar ef innviðurinn skemmist í meðförum þeirra.

Landbúnaðarháskóla Íslands, 13. maí 2025.

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor.

B deild — Útgáfudagur: 23. október 2025

Tengd mál