Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Kaldrananeshreppur

Málaflokkur

Sorphreinsun, Strandasýsla

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

14. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1712/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Kaldrananeshreppi.

1. gr.

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald (sorphreinsi- og sorpeyðingargjald) sem innheimt skal með fasteignagjöldum.

2. gr.

Gjaldið er árlega sem hér segir:

  1. Fyrir íbúðarhús og sumarhús í þéttbýli, 44.900 kr.
  2. Fyrir lögbýli og íbúðarhús í dreifbýli, 44.900 kr.
  3. Fyrir sumarhús í dreifbýli, 36.400 kr.

Fyrirtæki, stofnanir og aðrir sambærilegir lögaðilar greiða sorphirðugjald fyrir hverja starfsstöð fyrirtækisins samkvæmt áætlun um kostnað við sorphirðu og eyðingu frá þeim, er miðist við áætlað magn úrgangs og sé samkvæmt eftirfarandi flokkun:

 

Flokkur 1

  48.200 kr.
  Flokkur 2    67.000 kr.
  Flokkur 3

  73.700 kr.

  Flokkur 4   80.400 kr.
  Flokkur 5   89.750 kr.
  Flokkur 6   97.800 kr.
  Flokkur 7 361.750 kr.
  Flokkur 8 602.800 kr.

Sveitarstjórn skipar aðilum í gjaldflokka.

Heimilt er að fella niður sorphirðugjald skv. gjaldskrá D af þeim aðilum sem annast sjálfir flutning sorps á viðurkenndan eyðingarstað, enda greiði aðilar fyrir eyðingu sorpsins.

3. gr.

Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Kaldrananeshrepps, er hér með staðfest. Gjaldskráin er sett skv. ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjaldskráin öðlast þegar gildi og fellur þá jafnframt brott gjaldskrá sama efnis nr. 1808/2024.

Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Kaldrananeshrepps 10. desember 2025.

Drangsnesi, 10. desember 2025.

F.h. Kaldrananeshrepps,

Finnur Ólafsson oddviti.

B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026

Tengd mál