Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Félagsmál

Undirritunardagur

30. júní 2025

Útgáfudagur

30. júní 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 38/2025

30. júní 2025

LÖG

um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (EES-reglur o.fl.).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Á undan orðunum „þar til atvinnuleit“ í b-lið 2. mgr. 22. gr. laganna kemur: frá því að atvinnuleit var hætt og.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 23. gr. laganna:

  1. Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
    1. Í stað tilvísunarinnar „4. og 5. mgr.“ í 1. málsl. kemur: 5. og 6. mgr.
    2. Við bætist: sbr. þó 4. mgr.
  2. Í stað tilvísunarinnar „1., 3. og 5. mgr.“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 1., 3., 4., 5. og 6. mgr.
  3. Í stað tilvísunarinnar „1., 2., 4. og 5. mgr.“ í 4. málsl. 3. mgr. kemur: 1., 2., 4., 5. og 6. mgr.
  4. Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:

    Þegar foreldri hefur starfað á innlendum vinnumarkaði skemur en fjóra mánuði á viðmiðunartímabili tekna skv. 1., 2. eða 3. mgr. en hefur starfað að hluta eða að öllu leyti í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, Norðurlandasamningnum um almannatryggingar, stofnsamningi Fríverslunarsamtaka Evrópu eða samningi milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar á fyrrnefndu viðmiðunartímabili skal miða útreikning á meðaltali heildarlauna við þá almanaksmánuði sem foreldrið hefur starfað á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingarmánuð barns eða þann almanaksmánuð sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Í slíkum tilvikum skal foreldri láta tilskilin vottorð um áunnin starfstímabil og tryggingatímabil í öðru aðildarríki að framangreindum samningum fylgja með umsókn um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði skv. 20. gr. Að öðru leyti gilda 1., 2., 3., 5. og 6. mgr. eins og við á.
  5. Í stað tilvísunarinnar „1.–3. mgr.“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: 1.–4. mgr.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 24. gr. laganna:

  1. Í stað tilvísunarinnar „1.–3. mgr.“ í 1. mgr. kemur: 1.–4. mgr.
  2. Á eftir tilvísuninni „1.–3. mgr. 23. gr.“ í 2. mgr. kemur: sbr. þó 4. mgr. 23. gr.

4. gr.

Í stað tilvísunarinnar „1.–3. mgr.“ í 2., 3., 7., 8. og 10. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna kemur: 1.–4. mgr.

5. gr.

Í stað tilvísunarinnar „5. mgr.“ í 1. mgr. 41. gr. laganna kemur: 6. mgr.

6. gr.

Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2025 og eiga við um foreldra sem rétt eiga til greiðslna samkvæmt lögum þessum.

Gjört á Bessastöðum, 30. júní 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Inga Sæland.

A deild - Útgáfud.: 30. júní 2025

Tengd mál