Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Málaflokkur
Félagsmál
Undirritunardagur
21. desember 2023
Útgáfudagur
22. desember 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1466/2023
21. desember 2023
REGLUGERÐ
um fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks.
1. gr.
Fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi samkvæmt lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi, skulu vera sem hér segir til foreldra sem verða fyrir barnsmissi frá og með 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna skal nema 152.025 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.
2. gr.
Fjárhæðir sorgarstyrks samkvæmt lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi, skulu vera sem hér segir til foreldra sem verða fyrir barnsmissi frá og með 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023:
- Sorgarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna skal nema 91.937 kr. á mánuði.
- Sorgarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.
3. gr.
Fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi samkvæmt lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi, skulu vera sem hér segir til foreldra sem verða fyrir barnsmissi frá og með 1. janúar 2024 eða síðar:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna skal nema 160.538 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna skal nema 222.494 kr. á mánuði.
4. gr.
Fjárhæðir sorgarstyrks samkvæmt lögum nr. 77/2022, um sorgarleyfi, skulu vera sem hér segir til foreldra sem verða fyrir barnsmissi frá og með 1. janúar 2024 eða síðar:
- Sorgarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna skal nema 97.085 kr. á mánuði.
- Sorgarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna skal nema 222.494 kr. á mánuði.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 33. gr. laga nr. 77/2022, um sorgarleyfi, öðlast þegar gildi.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 21. desember 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Bjarnheiður Gautadóttir.
B deild - Útgáfud.: 22. desember 2023