Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
26. maí 2026
Útgáfudagur
9. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 651/2026
26. maí 2026
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.
Hálsahverfi – Krókháls 7A – USK25040088.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 10. febrúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 7A við Krókháls. Í breytingunni felst m.a. að byggingarreitur breytist og færist fjær lóðamörkum við Krókháls. Lóð Krókháls 7A stækkar til norðurs um 370 m² inn á lóð Hestháls 14. Á móti þessari lóðarbreytingu er látinn af hendi lóðarskiki austanmegin lóðar undir framtíðar tengingu Hestháls við Krókháls að ósk borgaryfirvalda að stærð 409,5 m². Lóðin Krókháls 7A er 5.585 m² en verður 5.545,5 m², nýtingarhlutfall óbreytt. Lóð Hestháls 14 minnkar um 370 m², lóðin er 25.765 m² en verður 25.395 m² eftir breytingu. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skútuvogur austur – Skútuvogur 5 og 7-9 –USK25050260.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 21. apríl 2026, breytingu á deiliskipulagi Skútuvogar austur vegna lóðanna nr. 5 og 7-9 við Skútuvog. Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja á milli húshluta 5 og 7 og að húshluti 5 verði stækkaður til austurs. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Sogamýri – Mörkin 8 – USK25110102.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 21. apríl 2026, breytingu á deiliskipulagi Sogamýrar vegna lóðarinnar nr. 8 við Mörkina. Í breytingunni felst stækkun núverandi byggingarreits til norðurs og viðbótarbyggingarreita sunnanmegin, svo að reisa megi tveggja hæða nýbyggingu við suðurenda núverandi byggingar með samtals 8 íbúðum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Sigtúnsreitur – Sigtún 42 – USK25100009.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 5. maí 2026, breytingu á deiliskipulagi Sigtúnsreits vegna lóðarinnar nr. 42 við Sigtún. Í breytingunni felst að afmarkaður er byggingarreitur fyrir hjóla- og sorpskýli á lóðinni ásamt því að nýtingarhlutfall eykst í 0,4. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 26. maí 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026