Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

30. október 2015

Útgáfudagur

13. nóvember 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1020/2015

30. október 2015

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Côte d´Ivoire (Fílabeinsströndina) nr. 143/2015.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Ákvæði 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Côte d´Ivoire nr. 143/2015 hljóði svo:

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr.:

1. Ákvörðun ráðsins 2010/656/SSUÖ frá 29. október 2010 um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1).
1.1 Ákvörðun ráðsins 2010/801/SSUÖ frá 22. desember 2010 um breytingu á ákvörðun ráðsins 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.1).
1.2 Ákvörðun ráðsins 2011/18/SSUÖ frá 14. janúar 2011 um breytingu á ákvörðun ráðsins 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.2).
1.3 Ákvörðun ráðsins 2011/221/SSUÖ frá 6. apríl 2011 um breytingu á ákvörðun 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.3).
1.4 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2012/144/SSUÖ frá 8. mars 2012 um framkvæmd ákvörðunar 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.4).
1.5 Ákvörðun ráðsins 2012/371/SSUÖ frá 10. júlí 2012 um breytingu á ákvörðun 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.5).
1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2014/271/SSUÖ frá 12. maí 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.6).
1.7 Ákvörðun ráðsins 2014/460/SSUÖ frá 14. júlí 2014 um breytingu á ákvörðun 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.7).
1.8 Ákvörðun ráðsins 2015/202/SSUÖ frá 9. febrúar 2015 um breytingu á ákvörðun 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.8).
1.9 Framkvæmdarákvörðun ráðsins 2015/621/SSUÖ frá 20. apríl 2015 um framkvæmd ákvörðunar 2010/656/SSUÖ um framlengingu þvingunaraðgerða gegn Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 1.9).
2. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 174/2005 frá 31. janúar 2005 um takmarkanir á aðstoð við Côte d´Ivoire sem tengist herstarfsemi (sjá fylgiskjal 2).
2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1032/2010 frá 15. nóvember 2010 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 174/2005 um takmarkanir á aðstoð við Côte d´Ivoire sem tengist hernaðarstarfsemi (sjá fylgiskjal 2.1).
2.2 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 668/2011 frá 12. júlí 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 174/2005 um takmarkanir á aðstoð við Côte d´Ivoire sem tengist herstarfsemi (sjá fylgiskjal 2.2).
2.3 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 617/2012 frá 10. júlí 2012 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 174/2005 um takmarkanir á aðstoð við Côte d´Ivoire sem tengist herstarfsemi (sjá fylgiskjal 2.3).
2.4 Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/192 frá 9. febrúar 2015 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 174/2005 um takmarkanir á aðstoð við Côte d´Ivoire sem tengist herstarfsemi (sjá fylgiskjal 2.4).
3. Reglugerð ráðsins (EB) nr. 560/2005 frá 12. apríl 2005 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins á Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 3).
3.1 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 25/2011 frá 14. janúar 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 560/2005 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins á Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 3.1).
3.2 Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 330/2011 frá 6. apríl 2011 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 560/2005 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins á Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 3.2).
3.3 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 193/2012 frá 8. mars 2012 um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 560/2005 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins á Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 3.3).
3.4 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 479/2014 frá 12. maí 2014 um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 560/2005 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins á Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 3.4).
3.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2015/615 frá 20. apríl 2015 um framkvæmd reglugerðar (EB) nr. 560/2005 um sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er gegn tilteknum aðilum og rekstrareiningum í ljósi ástandsins á Côte d´Ivoire (sjá fylgiskjal 3.5).

Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á frummáli og/eða til þeirra vísað á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við getur átt, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

2. gr. Breytingar á fylgiskjölum.

Fylgiskjöl 1-1.7, 2-2.3, og 3-3.4 eru ekki birt hér en koma fram í reglugerð nr. 143/2015 sem fylgiskjöl 1-8, 9-12 og 13, 15, 16, 17 og 18.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 30. október 2015.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Stefán Haukur Jóhannesson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 13. nóvember 2015

Tengd mál