Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjanesbær
Undirritunardagur
29. janúar 2026
Útgáfudagur
12. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 140/2026
29. janúar 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar vegna breytingar á miðsvæði M7 og hafnarsvæði H4.
Skipulagsstofnun staðfesti 29. janúar 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035, sem samþykkt var í sveitarstjórn 19. ágúst 2025.
Í breytingunni felst að miðsvæði M7 stækkar um 0,1 hektara vegna áforma um uppbyggingu og rekstur gistiheimilis og hafnarsvæði H4 minnkar sem því nemur. Ekki eru gerðar breytingar á leyfilegu byggingarmagni né íbúðafjölda fyrir miðsvæði M7. Áfram gilda ákvæði í gildandi aðalskipulagi um H4 og M7.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 29. janúar 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 12. febrúar 2026