Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál

Undirritunardagur

4. mars 2026

Útgáfudagur

6. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 230/2026

4. mars 2026

AUGLÝSING

um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, og fjárlög fyrir árið 2026 hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið fjárhæð niðurgreiðslna sem hér segir:

a) Niðurgreiðsla á raforku til húshitunar:  
  á veitusvæði HS Veitna   8,24 kr./kWst.,
  á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í dreifbýli* 13,64 kr./kWst.,
  á veitusvæði Orkubús Vestfjarða í þéttbýli 10,10 kr./kWst.,
  á veitusvæði RARIK í dreifbýli* 13,29 kr./kWst.,
  á veitusvæði RARIK í þéttbýli   9,49 kr./kWst.,
  á veitusvæði Veitna ohf.   8,77 kr./kWst.
  * Niðurgreiðslur í dreifbýli taka mið af dreifbýlisframlagi eins og það var 31. desember 2025 hjá dreifiveitum með heimild til dreifbýlisgjaldskrár
     
b) Niðurgreiðsla á vatni frá kyntum hitaveitum:  
  HEF Veitur 11,05 kr./kWst.,
  Orkubú Vestfjarða 10,55 kr./kWst.,
  HS Veitur   8,62 kr./kWst.
     
c) Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar.  
  Niðurgreiðsla á olíu til húshitunar tekur mið af meðalverði niðurgreiddrar raforku til húshitunar í dreifbýli, nýtni olíuhitunarkerfis og olíuverðs í hverjum ársfjórðungi samkvæmt útreikningum Umhverfis- og orkustofnunar.
   
d) Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis.
  Niðurgreiðsla á framleiðslu raforku til húshitunar utan almenns dreifikerfis skal vera 2,0 kr./kWst.

Í samræmi við 6. gr. laga nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar hefur umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ákveðið að hámarksfjöldi niðurgreiddra kWst./ári til hitunar verði 40.000 kWst. sem svarar til 888 m³/ári hjá kyntum hitaveitum og 4.480 lítrar af olíu á ári hjá þeim sem hita með olíu.

Auglýsing þessi gildir frá 1. janúar 2026 og kemur í stað auglýsingar sama efnis, nr. 5/2026.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 4. mars 2026.

F. h. r.

Jón Ásgeirsson.

Hreinn Hrafnkelsson.

B deild — Útgáfudagur: 6. mars 2026

Tengd mál