Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskólinn á Akureyri
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
28. ágúst 2025
Útgáfudagur
16. september 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 979/2025
28. ágúst 2025
REGLUR
um breytingu á reglum um námsmat fyrir Háskólann á Akureyri nr. 921/2018.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglnanna:
- Við c-lið 1. mgr. bætist: Komist prófdómari að þeirri niðurstöðu að í námsmati hafi ekki verið tekið nægilegt tillit til uppbyggingar og markmiða námskeiðs leggur hann fram tillögu/r til úrbóta og ber umsjónarkennara í samvinnu við deildarforseta að taka tillit til þeirra.
- 3. mgr. sem verður að 2. mgr., orðast svo: Við munnleg og verkleg próf skal umsjónarkennari velja prófdómara sem er sérfræðingur á viðkomandi fræðasviði.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
- Í stað „30%“ í 2. málsl. e-liðar kemur: 20%
- Í stað „30%“ í 4. málsl. e-liðar kemur: 20%
- Við greinina bætist nýr liður, g-liður, sem orðast svo: Nemandi sem kost á að brautskrást við næstu brautskráningu getur, í undantekningartilvikum og með að minnsta kosti þriggja mánaða fyrirvara frá áætluðum brautskráningardegi, sótt um til deildarforseta að ljúka við námsmat námskeiða af fyrri misserum.
3. gr.
Heiti d-liðar 7. gr. reglnanna verður: Útreikningur á lokaeinkunnum.
4. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar voru í háskólaráði Háskólans á Akureyri, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskólanum á Akureyri, 28. ágúst 2025.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor.
B deild — Útgáfudagur: 16. september 2025