Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Strandabyggð
Málaflokkur
Gæludýr, Strandasýsla
Undirritunardagur
18. desember 2024
Útgáfudagur
7. janúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1742/2024
18. desember 2024
GJALDSKRÁ
fyrir gæludýraleyfi í Strandabyggð.
1. gr.
Af hundum og köttum í Strandabyggð skal innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætlað er að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um gæludýrahald í Strandabyggð nr. 580/2022, sbr. 17. gr.
2. gr.
Við leyfisveitingu gæludýra skal innheimta skráningargjald sem hér segir:
| Nýskráning hunds | kr. | 15.375 |
| Nýskráning kattar | kr. | 9.675 |
| Aukagjald fyrir nýtt merki | kr. | 1.345 |
Innifalið í skráningargjaldi er merki, árleg skoðun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélagsins. Ekki er innheimt eftirlitsgjald á skráningarári. Afsláttur af skráningargjaldi ef eigandi hefur sótt viðurkennt hundaþjálfunarnámskeið kr. 8.155.
3. gr.
Af skráðum dýrum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald:
| Hundagjald | kr. | 11.285 |
| Kattagjald | kr. | 6.985 |
Innifalið í eftirlitsgjaldi er árleg skoðun og ormahreinsun, hópvátrygging og umsýslugjöld sveitarfélagsins.
4. gr.
Við hverja afhendingu handsamaðs hunds ber að innheimta gjald, 15.585 kr. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi hunds. Óskráða hunda má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu. Önnur og þriðja föngun hunds ber kostnað, 31.615 kr. Föngun hunds án leyfis ber kostnað, 36.935 kr. Við hverja afhendingu handsamaðs óskráðs kattar ber að innheimta gjald, 6.985 kr. Að auki skal eigandi greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi kattar. Óskráða ketti má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu.
5. gr.
Undanþegnir eftirlitsgjaldi eru hundar sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og skal ljósrit af viðurkenningu um þjálfun þeirra afhendast við umsókn um niðurfellingu eftirlitsgjalds. Heimilt er að ógilda niðurfellingu eftirlitsgjalds sé viðkomandi hundur ekki lengur notaður til löggæslu- eða björgunarstarfa samkvæmt skilgreiningu þessari. Ekki er innheimt eftirlitsgjald af hundum sem að læknisráði eru notaðir til aðstoðar blindu fólki og fötluðu.
6. gr.
Gjalddagi eftirlitsgjalds er 15. nóvember ár hvert og eindagi 15 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Gjöld skv. gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Verð í gjaldskrá þessari fylgir vísitölu neysluverðs eins og hún er 1. janúar ár hvert.
7. gr.
Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn er sett með heimild í 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Strandabyggð nr. 580/2022.
Samþykkt í sveitarstjórn Strandabyggðar 10. desember 2024. Gjaldskrá þessi tekur þegar gildi og fellur jafnframt brott gjaldskrá nr. 205/2024 fyrir gæludýraleyfi í Strandabyggð.
Strandabyggð, 18. desember 2024.
Þorgeir Pálsson sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 7. janúar 2025