Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Félagsmálaráðuneytið (2001-2009)
Málaflokkur
Reykjavík, Sveitarstjórnarmál
Undirritunardagur
7. desember 2007
Útgáfudagur
19. desember 2007
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1200/2007
7. desember 2007
SAMÞYKKT
um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
I. KAFLI
Um skipan borgarstjórnar og verkefni hennar.
1. gr.
Skipan borgarstjórnar.
Borgarstjórn Reykjavíkur er skipuð 15 borgarfulltrúum kjörnum samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, sbr. 8. og 12. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
2. gr.
Stjórn Reykjavíkurborgar.
Borgarstjórn fer með stjórn Reykjavíkurborgar, gætir hagsmuna hennar, er í fyrirsvari fyrir hana og vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna.
3. gr.
Starfstími.
Starfstímabil borgarstjórnar hefst 15 dögum eftir kjördag í sveitarstjórnarkosningum og gildir til jafnlengdar að fjórum árum liðnum.
4. gr.
Verkefni borgarstjórnar.
Borgarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum. Þá getur borgarstjórn ákveðið að Reykjavíkurborg taki að sér verkefni sem varðar íbúa hennar sérstaklega enda sé það ekki falið öðrum til úrlausnar að lögum.
Meðal verkefna hennar eru þessi:
- Borgarstjórn fer með yfirstjórn á fjármálum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja skv. VI. kafla sveitarstjórnarlaga, sbr. og VI. kafla samþykktar þessarar.
- Borgarstjórn setur samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, aðrar samþykktir og gjaldskrár eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.
- Borgarstjórn hefur yfirstjórn með verklegum framkvæmdum borgarinnar.
- Borgarstjórn kýs forseta borgarstjórnar auk tveggja varaforseta, borgarráð og aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. II. og IV. kafla samþykktar þessarar svo og skoðunarmenn ársreiknings borgarinnar.
- Borgarstjórn ákveður stjórnkerfi Reykjavíkurborgar og ræður borgarstjóra og aðra starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá borginni.
II. KAFLI
Fundarsköp borgarstjórnar.
5. gr.
Fundartími.
Borgarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í mánuði, fyrsta og þriðja þriðjudag hvers mánaðar sem ekki ber upp á helgidag eða almennan frídag og skal fundur að jafnaði hefjast kl. 14.00. Falli reglulegur fundardagur á helgidag eða almennan frídag skal boða til aukafundar þann virkan dag á undan eða eftir sem næstur er.
Aðra aukafundi skal halda samkvæmt ákvörðun borgarstjóra, forsætisnefndar eða ef fimm borgarfulltrúar hið fæsta krefjast þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.
Heimilt er borgarstjórn að fella niður fundi í allt að tvo mánuði samfellt að sumarlagi. Á meðan á sumarleyfi borgarstjórnar stendur fer borgarráð með sömu heimildir og borgarstjórn hefur ella, sbr. þó 5. mgr. 51. gr.
6. gr.
Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar.
Sá borgarfulltrúi sem á að baki lengstu setu í borgarstjórn kveður hana saman til fyrsta fundar að afloknum sveitarstjórnarkosningum eigi síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum, þ.e. eigi síðar en 30 dögum eftir kjördag.
Hafi tveir eða fleiri fulltrúar í borgarstjórn átt jafnlengi setu í borgarstjórn fer aldursforseti þeirra með fundarboð skv. 1. mgr.
Dagskrá – fundarboð.
7. gr.
Fundarboð.
Borgarstjóri boðar til borgarstjórnarfundar skv. 5. gr. Fundir borgarstjórnar skulu haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur nema annar fundarstaður sé ákveðinn af borgarstjórn eða borgarstjóra.
Auglýsa skal fundi borgarstjórnar í Ráðhúsinu með a.m.k. 24 klst. fyrirvara og greina þar dagskrá fundar. Dagskrá borgarstjórnarfunda skal með sama fyrirvara send fjölmiðlum.
Heimilt er að fella niður auglýsingu og tilkynningu til fjölmiðla samkvæmt þessari grein ef aukafundur er boðaður með svo naumum fyrirvara að slíku verði ekki við komið eða hafa skemmri fyrirvara en segir í 2. mgr.
8. gr.
Dagskrá borgarstjórnarfundar.
Forseti borgarstjórnar semur dagskrá borgarstjórnarfundar og skal dagskráin fylgja fundarboði.
Á dagskrá skal taka í þeirri röð sem að neðan greinir:
- Lögákveðnar kosningar, svo sem kosningu forseta borgarstjórnar og tveggja varaforseta, kosningar nefnda, ráða og stjórna á vegum borgarinnar svo og kosningu borgarstjóra.
- Mál sem falla undir verksvið borgarstjórnar, sbr. 4. gr., og forsætisnefnd, borgarstjóri eða einstakir borgarfulltrúar vilja taka á dagskrá. Ósk um slíkt, eftir atvikum með tillögu eða fyrirspurn, skal berast skrifstofustjóra borgarstjórnar skriflega eða með rafrænum hætti eigi síðar en kl. 12.00 tveimur virkum dögum fyrir fund.
- Fundargerðir borgarráðs ásamt fundargerðum eftirtalinna nefnda og ráða: Forsætisnefndar, íþrótta- og tómstundaráðs, leikskólaráðs, mannréttindaráðs, menningar- og ferðamálaráðs, menntamálaráðs, skipulagsráðs, stjórnar eignasjóðs, umhverfis- og samgönguráðs og velferðarráðs.
Í dagskrá skal tilgreina fundarstað og tíma, þær fundargerðir sem fyrir fundi liggja, tillögur sem fram hafa komið og gera í stuttu máli grein fyrir þeim málum öðrum sem um skal fjallað. Fylgja skulu eftirrit fundargerða, tillagna svo og annarra gagna sem geta orðið til upplýsingar um málefni á dagskrá, eftir því sem borgarstjóri telur nauðsynlegt og við verður komið.
9. gr.
Útsending dagskrár.
Borgarstjóri skal senda borgarfulltrúum og varaborgarfulltrúum fundarboð borgarstjórnarfundar ásamt dagskrá og fylgigögnum þannig að þau gögn berist þeim í síðasta lagi kl. 14.00 tveimur dögum fyrir fund.
Borgarstjóri skal senda borgarfulltrúum og varaborgarfulltrúum fundarboð aukafundar í borgarstjórn þannig að það berist þeim ásamt dagskrá a.m.k. 24 klst. fyrir fund.
Kosning forseta og skrifara – fundargerð.
10. gr.
Kjör forseta.
Sá borgarfulltrúi sem boðar til fyrsta fundar skv. 6. gr. setur fyrsta fund nýkjörinnar borgarstjórnar og stýrir honum uns forseti hefur verið kjörinn. Fyrsta dagskrármál þess fundar skal vera kosning forseta borgarstjórnar svo og fyrsta og annars varaforseta úr hópi borgarfulltrúa til eins árs og síðan í júní ár hvert.
Sá er rétt kjörinn forseti sem fengið hefur atkvæði meira en helmings borgarfulltrúa. Verði þeim atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju og skal þá kjósa um þá tvo sem flest atkvæði fengu. Ef þrír eða fleiri sem um skyldi kjósa hafa fengið jafnmörg atkvæði skal varpa hlutkesti um hverja tvo skuli kjósa. Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær þó hann fái ekki helming atkvæða. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Forseti stjórnar kjöri varaforseta borgarstjórnar og skal sömu aðferð beitt við kosningu þeirra, sbr. 2. mgr. 10. gr.
11. gr.
Tilkynning á kjöri – starfsaldursforseti.
Tilkynna skal kjör forseta borgarstjórnar og fyrsta og annars varaforseta til félagsmálaráðuneytisins þegar að því loknu.
Ef enginn forseta er viðstaddur á fundi borgarstjórnar gegnir starfsaldursforseti forsetastörfum nema borgarstjórn ákveði að kjósa sérstakan fundarstjóra í það skipti.
12. gr.
Forsætisnefnd.
Forseti og varaforsetar borgarstjórnar skipa forsætisnefnd og stýrir forseti starfi nefndarinnar. Nú á framboðslisti sem fær kjörinn fulltrúa í borgarstjórn ekki fulltrúa í forsætisnefnd skv. 1. málsl. og skal hann þá tilnefna borgarfulltrúa úr sínum röðum sem áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd með málfrelsi og tillögurétt.
Forsætisnefnd heldur að jafnaði fundi tvisvar í mánuði. Boða skal til aukafunda eftir þörfum. Forseti boðar til funda forsætisnefndar og ákveður dagskrá í samráði við framkvæmdastjóra nefndarinnar.
Verkefni forsætisnefndar eru sem hér segir:
- Skipuleggur starf borgarstjórnar.
- Hefur umsjón með alþjóðasamstarfi borgarstjórnar.
- Fjallar um tillögur að breytingum á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar og samþykktum fyrir einstakar nefndir.
- Fjallar um álitamál varðandi málsmeðferð í stjórnsýslu og stjórnkerfi Reykjavíkurborgar sem til hennar er vísað.
- Setur reglur um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa, sbr. einnig III. kafla.
- Ákveður um móttökur á vegum borgarinnar.
- Fjallar um önnur þau mál sem forseti leggur fyrir hana eða aðrir nefndarmenn, áheyrnarfulltrúar eða skrifstofustjóri borgarstjórnar óskar að ræða.
Skrifstofa borgarstjórnar annast umsýslu fyrir forsætisnefnd, þ.m.t. ritun fundargerða, og er skrifstofustjóri borgarstjórnar framkvæmdastjóri forsætisnefndar.
13. gr.
Forseti víkur – forföll.
Ef forseti nýtur ekki lengur stuðnings meirihluta þeirra sem sæti eiga í borgarstjórn skal hann víkja sæti og forsetakjör fara fram á ný.
Ef forseti og varaforseti verða varanlega forfallaðir frá störfum í borgarstjórn, áður en kjörtími þeirra er á enda, skal kjósa forseta í þeirra stað fyrir þann tíma sem eftir er kjörtímabils forseta.
14. gr.
Skrifarar.
Borgarstjórn kýs tvo skrifara og tvo varaskrifara úr hópi borgarfulltrúa til eins árs í senn á sama fundi og forsetakosning fer fram. Skrifarar skulu kosnir hlutfallskosningu. Skrifarar skulu telja saman atkvæði þá er atkvæðagreiðslur fara fram.
15. gr.
Fundarritari.
Skrifstofustjóri borgarstjórnar er fundarritari borgarstjórnar og sér um færslu gerðabókar og hafa skrifarar, í samráði við forseta, eftirlit með að rétt sé fært til bókar.
Í gerðabók skal þess getið hvar og hvenær fundur sé haldinn, hverjir sitji fundinn, hvaða mál séu tekin fyrir á fundinum og afgreiðslu þeirra.
Forseti og skrifarar skulu ganga frá fundargerð og undirrita hið fyrsta að loknum fundi. Forseti getur ákveðið að fundargerð eða hluti hennar verði lesinn upp í fundarlok og skulu þá allir viðstaddir fulltrúar undirrita hana.
Borgarstjórn getur ákveðið að fundargerðir verði skráðar í tölvu.
16. gr.
Opnir fundir.
Borgarstjórnarfundi skal halda í heyranda hljóði. Borgarstjórn getur þó ákveðið að ræða einstök mál fyrir luktum dyrum, til dæmis einkamál manna eða mál sem æskilegt er vegna hagsmuna borgarinnar að rædd séu fyrir luktum dyrum.
Ef tillaga kemur fram um að mál skuli rætt fyrir luktum dyrum skal úr því skorið án umræðna.
Óheimilt er að skýra frá því sem fram kemur við umræður fyrir luktum dyrum.
Ályktunarhæfi – fundarstjórn.
17. gr.
Ályktunarhæfi.
Borgarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur borgarfulltrúa sé viðstaddur fund.
18. gr.
Fundarstjórn.
Forseti borgarstjórnar stjórnar umræðum á fundum hennar. Hann sér um að fundargerðir séu skipulega færðar í gerðabók og allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega bókaðar svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
Forseti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum borgarstjórnar. Hann úrskurðar um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar borgarstjórnar.
Leyfi forseta þarf til að taka myndir í fundarsal borgarstjórnar.
19. gr.
Vald forseta.
Skylt er borgarfulltrúa að lúta valdi forseta í hvívetna að því er lýtur að gætt sé góðrar reglu.
Ef borgarfulltrúi ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal forseti víta hann. Ef borgarfulltrúi er víttur tvisvar á sama fundi getur forseti lagt til við borgarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd umræðulaust.
Ef borgarfulltrúi hlýðnast ekki úrskurði borgarstjórnar eða almenn óregla kemur upp á fundi skal forseti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
Ef áheyrandi á borgarstjórnarfundi raskar fundarfriði getur forseti látið vísa honum út.
20. gr.
Afgreiðsla tillagna.
Mál skulu afgreidd í þeirri röð sem dagskrá segir nema borgarstjórn eða forseti ákveði að önnur röð skuli höfð. Forseti getur ákveðið að tiltekið mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum.
Heimilt er að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra borgarfulltrúa þau afbrigði.
21. gr.
Ein umræða eða tvær.
Borgarstjórn afgreiðir mál að jafnaði við eina umræðu. Þó skal hafa tvær umræður með a.m.k. einnar viku millibili um eftirtalin málefni:
- Fjárhagsáætlanir.
- Ársreikning.
- Samþykktir (reglugerðir) og gjaldskrár sem hljóta eiga staðfestingu ráðherra.
- Áætlanir fyrir Reykjavíkurborg sem gilda eiga til lengri tíma, svo sem skipulags- og framkvæmdaáætlanir, sem og þriggja ára áætlun skv. 63. gr. sveitarstjórnarlaga.
- Tilkynningu til eftirlitsnefndar skv. 75. gr. sveitarstjórnarlaga.
22. gr.
Málfrelsi borgarstjóra o.fl.
Borgarstjóri skal sitja fundi borgarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í borgarstjórn.
Borgarstjórn getur heimilað ef 2/3 borgarfulltrúa samþykkja að maður utan borgarstjórnar megi taka til máls á borgarstjórnarfundi.
Vanhæfi.
23. gr.
Hvað veldur vanhæfi.
Borgarfulltrúi er vanhæfur til meðferðar máls:
- Ef hann er aðili máls, fyrirsvarsmaður eða umboðsmaður aðila.
- Ef hann er eða hefur verið maki aðila, er skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar.
- Ef hann tengist fyrirsvarsmanni eða umboðsmanni aðila með þeim hætti sem segir í 2. tölul.
- Á kærustigi þegar mál er kært til úrskurðar borgarstjórnar, nefndar eða ráðs ef hann hefur áður átt aðkomu að málinu, sbr. þó 1. tölul. 1. mgr. 24. gr.
- Ef mál varðar hann sjálfan verulega, venslamenn hans skv. 2. tölul., næstu yfirmenn persónulega eða stofnun eða fyrirtæki í einkaeign sem hann er í fyrirsvari fyrir.
- Ef hann er jafnframt starfsmaður Reykjavíkurborgar og hefur sem slíkur átt þátt í að undirbúa tiltekið mál sem lagt er fyrir borgarstjórn er hann alltaf vanhæfur þegar borgarstjórn fjallar um málið nema þegar borgarstjórn fjallar um og afgreiðir fjárhagsáætlanir og ársreikninga Reykjavíkurborgar. Þessi töluliður á ekki við borgarstjóra.
- Ef að öðru leyti eru fyrir hendi aðstæður sem fallnar eru til þess að draga óhlutdrægni hans í efa með réttu.
24. gr.
Hvað veldur eigi vanhæfi.
Það veldur eigi vanhæfi borgarfulltrúa:
- Ef hann hefur sem nefndarmaður komið að ákvörðunartöku nefndar, ráðs eða stjórnar á lægra stjórnsýslustigi innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar.
- Ef hann situr í stjórn félags eða stofnunar sem fulltrúi Reykjavíkurborgar og hefur verið til þess kjörinn eða tilnefndur og tekur þátt í afgreiðslu máls sem félagið eða stofnunina varðar, enda varði málið viðkomandi félag eða stofnun ekki svo sérstaklega að almennt megi ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar af.
- Ef verið er að velja fulltrúa til trúnaðarstarfa á vegum Reykjavíkurborgar eða ákveða þóknun fyrir slík störf.
- Ef þeir hagsmunir sem málið snýst um eru það smávægilegir, eðli málsins er með þeim hætti eða þáttur starfsmannsins eða nefndarmanns í meðferð málsins er það lítilfjörlegur að ekki er talin hætta á að ómálefnaleg sjónarmið hafi áhrif á ákvörðun.
Borgarfulltrúa sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber að vekja athygli borgarstjórnar á því.
25. gr.
Meðferð máls um vanhæfi.
Borgarfulltrúa er heimilt við meðferð máls sem hann er vanhæfur að afgreiða að gera stuttlega grein fyrir afstöðu sinni. Borgarstjórn sker umræðulaust úr um hvort mál er svo vaxið að einhver borgarfulltrúi sé vanhæfur. Borgarfulltrúi sem hlut á að máli má taka þátt í atkvæðagreiðslu um hæfi sitt.
Borgarfulltrúi sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal borgarstjórnar við meðferð og afgreiðslu þess.
26. gr.
Nefndir – ráð – starfsmenn – vanhæfi.
Vanhæfisástæður eiga við um fulltrúa í nefndum og ráðum svo og starfsmenn Reykjavíkurborgar eftir því sem við á.
Málfrelsi – tillöguréttur – atkvæðagreiðsla.
27. gr.
Málfrelsi.
Borgarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum borgarstjórnar.
Hver borgarfulltrúi sem taka vill til máls skal óska heimildar forseta.
Að jafnaði skulu menn taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að ræða borgarstjóra eða framsögumann svo og borgarfulltrúa sem gera vill stutta athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar, sbr. 31. gr.
Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs ákveður forseti í hvaða röð þeir tala.
Borgarfulltrúi skal vera í ræðustól meðan hann talar nema forseti leyfi annað.
Forseti getur heimilað borgarfulltrúa að taka til máls utan dagskrár, enda hafi hann ekki átt kost á því að fá málið sett á útsenda dagskrá í tæka tíð.
28. gr.
Ávarp ræðumanns.
Borgarfulltrúi skal beina máli sínu til forseta.
Ræðumaður skal ávarpa einstaka borgarfulltrúa með fullu nafni.
Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að ræða.
Ekki má lesa prentað mál nema forseti leyfi.
29. gr.
Hve oft má tala.
Framsögumaður má tala þrisvar við hverja umræðu máls en aðrir borgarfulltrúar tvisvar. Borgarfulltrúa er þó heimilt að taka oftar til máls til að gera stutta athugasemd eða bera af sér ámæli. Forseti getur heimilað borgarfulltrúa að gera stutta athugasemd oftar en einu sinni undir hverjum dagskrárlið sé um að ræða athugasemd um fundarsköp, fundarstjórn forseta eða til að bera af sér ámæli. Borgarstjóri hefur óbundið málfrelsi.
30. gr.
Ræðutími.
Við umræðu um mál skv. 2. tölul. 2. mgr. 8. gr. má ræðutími vera allt að 30 mínútur. Ræðutími í síðari ræðu má vera allt að tíu mínútur; hið sama gildir um þriðju ræðu framsögumanns og síðari ræður borgarstjóra. Við umræður um fundargerðir skv. 3. tölul. 2. mgr. 8. gr. er ræðutími takmarkaður við fimm mínútur. Við umræður um mál sem tekin eru á dagskrá samkvæmt síðari málslið 1. mgr. og 2. mgr. 20. gr., og umræður utan dagskrár skv. 6. mgr. 27. gr., ákveður forseti takmarkanir á ræðutíma.
Ræðutími borgarfulltrúa sem óskar eftir að gera stutta athugasemd eða bera af sér ámæli má vera allt að ein mínúta. Forseti getur þó heimilað lengri ræðutíma við umræður um fundarsköp eða fundarstjórn forseta.
Forseta er þó heimilt að rýmka ræðutíma sé mál það umfangsmikið eða mikilvægt að ekki sé hægt að ræða það á fullnægjandi hátt innan þeirra reglna sem mælt er fyrir um í 1. mgr. Einnig er forseta heimilt að rýmka ræðutíma borgarfulltrúa ef sérstaklega stendur á og nauðsyn krefur. Ákvörðun forseta samkvæmt þessari málsgrein skal liggja fyrir áður en umræða hefst.
Við síðari umræðu um fjárhagsáætlun og aðalskipulag Reykjavíkurborgar skal ræðutími vera óbundinn.
31. gr.
Andsvar.
Þrátt fyrir ákvæði 29. gr. getur forseti leyft borgarfulltrúum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum strax og þær hafa verið fluttar. Skal þá sá er vill svara bera fram ósk um það við forseta. Andsvari má einungis beina að máli ræðumanns en ekki annarri ræðu eða öðru andsvari.
Hvert andsvar má ekki taka lengri tíma en tvær mínútur og skal ræðumanni heimilt að svara því á tveimur mínútum. Svari ræðumaður andsvari er þeim sem andsvar veitti heimilt að veita andsvar öðru sinni og er ræðumanni jafnframt heimilt að svara því andsvari. Veiti fleiri en einn borgarfulltrúi andsvar við sömu ræðu skal ræðumanni að jafnaði veitt færi á að svara hverju andsvari fyrir sig.
Orðaskipti í andsvörum mega ekki standa lengur en 16 mínútur í einu. Heimilt er forseta að takmarka ræðutíma í andsvörum enn frekar en skv. 2. mgr. sé fyrirséð að orðaskipti muni að öðrum kosti standa lengur.
Að jafnaði er forseta heimilt að leyfa borgarfulltrúa að veita andsvar við einni ræðu undir hverjum dagskrárlið.
32. gr.
Umræður dragast á langinn.
Ef forseti telur umræður dragast úr hófi fram getur hann lagt til að ræðutími hvers borgarfulltrúa megi ekki fara fram úr ákveðinni tímalengd eða umræðum verði hætt.
Þá getur forseti hvenær sem er lagt til að umræðu skuli lokið á ákveðnum tíma. Ekki má þó takmarka umræðu svo að hún standi skemur en tvo tíma meðan nokkur borgarfulltrúi kveður sér hljóðs.
Borgarstjórn afgreiðir tillögur forseta skv. 1. og 2. mgr. umræðulaust.
Ákvæði um takmörkun ræðutíma eiga ekki við þegar fjallað er um frumvarp um fjárhagsáætlun.
33. gr.
Tillögur – afgreiðsla.
Borgarstjóri og hver borgarfulltrúi getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu, frestunartillögu eða frávísunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er og borgarstjórn á úrskurðarvald um.
Mál má afgreiða með því að samþykkja það eða fella, vísa því frá með einfaldri eða rökstuddri dagskrá, vísa því til afgreiðslu borgarstjóra eða nefndar eða með því að fresta því.
Forseti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
34. gr.
Atkvæðagreiðsla.
Atkvæðagreiðsla fer að jafnaði þannig fram að borgarfulltrúi réttir upp hönd. Borgarfulltrúi greiðir atkvæði úr sæti sínu.
Nafnakall skal viðhafa ef forseti ákveður, borgarstjóri óskar eða fjórir borgarfulltrúar hið fæsta. Við nafnakall greiða borgarfulltrúar atkvæði eftir skrá um borgarfulltrúa í stafrófsröð. Við nafnakall skal forseti greiða atkvæði síðastur. Nöfn varafulltrúa skal bæta á skrána í réttri röð í stað nafna þeirra sem fjarstaddir eru. Hlutkesti ræður á hverjum skal byrja.
Ef borgarfulltrúi vill ekki una úrskurði forseta má hann skjóta úrskurðinum til borgarstjórnar sem sker úr án umræðna.
35. gr.
Bókun.
Borgarfulltrúi á rétt á að fá bókaða stutta athugasemd í fundargerð um afstöðu sína til máls sem til meðferðar er í borgarstjórn. Óheimilt er þó að færa í gerðabók greinargerðir eða hvers konar skriflegan málflutning um afstöðu borgarfulltrúa til máls sem til meðferðar er.
36. gr.
Úrslit mála.
Á borgarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Ef jafnmörg atkvæði eru með málefni og móti því fellur það, en við kosningar ræður hlutkesti.
Kosningar skulu vera hlutfallskosningar, sbr. 85. og 86. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998. Þegar um meirihlutakosningu er að ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við forsetakjör.
37. gr.
Skrásetning umræðna.
Allar umræður í borgarstjórn skuli skrásettar. Má þar ekkert undan fella sem fram hefur komið á fundi borgarstjórnar og handrit af umræðum bera með sér. Engar breytingar má gera nema leiðrétta þurfi auðsæjar og sannanlegar villur.
Umræður frá fundum borgarstjórnar skulu gefnar út á prenti eða birtar með öðrum hætti ásamt því sem fært hefur verið í gerðabækur svo og önnur skjöl eftir því sem nauðsynlegt kann að þykja.
38. gr.
Borgarafundir – almenn atkvæðagreiðsla.
Heimilt er borgarstjóra að boða til almennrar atkvæðagreiðslu um einstök mál og boða til almennra borgarafunda um einstök málefni Reykjavíkurborgar.
Skylt er að halda almennan borgarafund ef ¼ hluti atkvæðisbærra manna í sveitarfélaginu óskar þess. Ályktanir slíkra funda eru ekki bindandi fyrir borgarstjórn.
Borgarstjórn getur efnt til almennrar atkvæðagreiðslu í Reykjavíkurborg eða í tilteknum borgarhverfum til að kanna vilja kosningabærra íbúa um tiltekið málefni. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er ekki bindandi um afgreiðslu málsins fyrir borgarstjórn nema hún hafi fyrirfram ákveðið að svo skuli vera, sbr. þó 4. mgr.
Ef Reykjavíkurborg fyrirhugar að ráðast í ákveðna framkvæmd og áætlaður heildarkostnaður borgarinnar vegna hennar nemur hærri fjárhæð en áætluðum fimmtungi árlegra skatttekna borgarinnar á yfirstandandi reikningsári er skylt að efna til almennrar atkvæðagreiðslu ef ¼ hluti þess fjölda sem þátt tók í síðustu sveitarstjórnarkosningum óskar þess. Ósk um almenna atkvæðagreiðslu skal berast innan 90 daga frá samþykkt borgarstjórnar vegna framkvæmdarinnar. Komi slík ósk fram og hún uppfyllir þau skilyrði sem hér eru sett ber borgarstjórn að fresta fyrirhugaðri framkvæmd þar til atkvæðagreiðsla um málið hefur farið fram. Atkvæðagreiðslan skal fara fram samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum. Borgarstjórn getur þó ákveðið að efnt skuli til atkvæðagreiðslu fyrr.
Niðurstaða slíkrar atkvæðagreiðslu er bindandi um afgreiðslu málsins ef a.m.k. 2/3 hlutar atkvæðisbærra manna í Reykjavíkurborg taka þátt í henni.
Til almenns borgarafundar skal boðað með opinberri auglýsingu og skal þar taka fram hverjir hafi atkvæðisrétt á fundinum ef ætlunin er að atkvæðagreiðsla fari þar fram.
39. gr.
Framkvæmd atkvæðagreiðslu.
Við atkvæðagreiðslu skv. 38. gr. skal farið eftir meginreglum laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 eftir því sem við getur átt. Veruleg frávik frá lögunum, svo sem vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar eða rafrænnar atkvæðagreiðslu, eru háð samþykkt borgarstjórnar.
III. KAFLI
Um réttindi og skyldur borgarfulltrúa.
40. gr.
Skylda til að sækja fundi og taka að sér störf.
Hverjum borgarfulltrúa er skylt að sækja fundi borgarstjórnar nema lögmæt forföll hamli.
Borgarfulltrúa er skylt að taka að sér þau störf sem borgarstjórn felur honum, til dæmis forsetastörf, setu í borgarráði eða öðrum nefndum. Þó getur sá sem verið hefur forseti borgarstjórnar eitt kjörtímabil eða lengur skorast undan kosningu jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið á hendi.
41. gr.
Skyldur.
Borgarfulltrúa ber að gegna störfum sínum í borgarstjórn af alúð og samviskusemi og gæta hagsmuna Reykjavíkurborgar, en í störfum sínum er borgarfulltrúi einungis bundinn af lögum og sannfæringu sinni.
42. gr.
Málfrelsi – tillöguréttur – atkvæðisréttur.
Borgarfulltrúi hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum borgarstjórnar eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt þessari.
43. gr.
Aðgangur að gögnum.
Borgarfulltrúi á aðgang að bókum og skjölum Reykjavíkurborgar og einnig óhindraðan aðgang að stofnunum hennar og fyrirtækjum á venjulegum afgreiðslutíma til upplýsingaöflunar vegna starfa sinna.
44. gr.
Þagnarskylda.
Borgarfulltrúi skal gæta þagnarskyldu um það sem hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara vegna einka- eða almannahagsmuna samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskyldan helst áfram eftir að borgarfulltrúi lætur af þeim störfum.
45. gr.
Brotthvarf úr starfi.
Nú telur borgarfulltrúi sig ekki geta gegnt skyldum sínum í borgarstjórn án óhæfilegs álags og getur borgarstjórn þá létt af honum störfum eða veitt honum lausn að eigin ósk um tiltekinn tíma eða til loka kjörtímabils. Varamaður tekur þá sæti hans skv. 24. gr. sveitarstjórnarlaga. Séu borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi báðir forfallaðir á sami framboðsaðili rétt á að tilnefna fulltrúa af framboðslista sínum til bráðabirgða.
Missi fulltrúi í borgarstjórn kjörgengi skal hann víkja úr borgarstjórninni, sbr. þó ákvæði 4. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
Nú er borgarfulltrúi af einhverjum ástæðum sviptur fjárforræði, svo sem ef bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, og skal borgarstjórn þá veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.
46. gr.
Laun.
Borgarfulltrúi skal fá laun úr borgarsjóði fyrir störf sín í borgarstjórn.
Haga skal fundum borgarstjórnar þannig að borgarfulltrúar eigi möguleika á að taka sér orlof árlega.
Forsætisnefnd skal setja nánari reglur um réttindi borgarfulltrúa, svo sem um lífeyrissjóð, fæðingarorlof, starfslok, ferða-, dvalar- og ráðstefnukostnað o.fl.
47. gr.
Varaborgarfulltrúar.
Ákvæði þessa kafla um réttindi og skyldur borgarfulltrúa gilda einnig um varaborgarfulltrúa sem taka sæti í borgarstjórn.
IV. KAFLI
Nefndir, ráð og stjórnir.
48. gr.
Kosning – áheyrnarfulltrúar – kjörgengi.
Borgarstjórn kýs fulltrúa í borgarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir og leysir þá frá störfum ef því er að skipta samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar þessarar og öðrum samþykktum borgarráðs. Slíkar kosningar skulu vera leynilegar bundnar hlutfallskosningar ef einhver borgarfulltrúa óskar þess.
Framboðslista sem á fulltrúa í borgarstjórn er heimilt að tilnefna borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa til að sitja fundi borgarráðs eða fagráða skv. 61. gr. með málfrelsi og tillögurétt, enda eigi hann ekki fulltrúa í viðkomandi ráði.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana Reykjavíkurborgar eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra fyrirtækja eða stofnana er þeir starfa hjá. Borgarstjórn getur vikið frá þessu ákvæði ef málefni vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starf viðkomandi einstaklings er ekki þess eðlis að hætta sé á hagsmunaárekstrum þrátt fyrir nefndarsetu.
Borgarráð.
49. gr.
Kosning borgarráðs – borgarstjóri.
Borgarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö borgarfulltrúa í borgarráð til eins árs og jafnmarga til vara. Borgarfulltrúar eru einir kjörgengir sem aðalmenn í borgarráð.
Borgarstjóri situr fundi borgarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé borgarfulltrúi og kjörinn í borgarráðið.
50. gr.
Fundir.
Á fyrsta fundi nýkjörins borgarráðs skal kjósa formann og varaformann borgarráðsins. Formaður borgarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum þess. Um fundarsköp borgarráðs fer eftir sömu reglum og gilda um borgarstjórn eftir því sem þau geta átt við. Ákvæði 53.-59. gr. um nefndir, ráð og stjórnir taka jafnframt til borgarráðs eftir því sem við á.
Formaður borgarráðs úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má úrskurði hans til úrlausnar borgarráðsins.
Skrifstofustjóri borgarstjórnar er fundarritari borgarráðs.
Um ritun fundargerða borgarráðs gilda sömu reglur og um ritun fundargerða borgarstjórnar, sbr. 2. mgr. 15. gr.
Borgarstjóri undirbýr dagskrá borgarráðsfunda í samráði við formann ráðsins og sér um að hún sé send borgarráðsmönnum. Heimilt er að taka mál til meðferðar í borgarráði þótt ekki sé það tilgreint á dagskrá, en skylt er þá að fresta afgreiðslu þess til næsta fundar ef þess er óskað.
Borgarráð skal að jafnaði halda fundi vikulega á fimmtudögum. Aukafundi skal halda ef borgarstjóri ákveður það eða ef formaður borgarráðs eða tveir borgarráðsmenn hið fæsta óska þess skriflega.
51. gr.
Verkefni borgarráðs.
Borgarráð fer ásamt borgarstjóra með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar og fjármálastjórn að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. Borgarráð hefur umsjón með stjórnsýslu borgarinnar, undirbúningi fjárhagsáætlana, fjallar um frumvarp að fjárhagsáætlun borgarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja og leggur það fyrir borgarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga.
Þá sér borgarráð um að ársreikningar borgarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja lagðir fyrir borgarstjórn til afgreiðslu svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.
Við undirbúning að fjárhagsáætlun ár hvert skal borgarstjóri auglýsa eftir ábendingum og tillögum borgarbúa um mál er varða gerð fjárhagsáætlunar og skal borgarráð hafa þær til hliðsjónar við tillögugerð sína.
Borgarráð tekur fullnaðarákvörðun um mál sem ekki varða verulega fjárhag borgarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli borgarráðsmanna eða við borgarstjóra um slíka afgreiðslu.
Verði ágreiningur um ákvörðun í borgarráði í sumarleyfi borgarstjórnar, sbr. 3. mgr. 5. gr., telst málið eigi til lykta leitt ef skemmri tími en tvær vikur eru til næsta reglulegs fundar borgarstjórnar, fyrir liggur ákvörðun um aukafund í borgarstjórn eða bókuð er krafa í borgarráði um aukafund í borgarstjórn og staðfesting, sbr. 2. mgr. 5. gr., berst borgarstjórn innan þriggja sólarhringa.
Borgarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun.
Þá getur borgarstjórn falið borgarráði fullnaðarafgreiðslu einstakra mála nema lög mæli á annan veg.
52. gr.
Starfsmenn.
Skylt er starfsmönnum borgarinnar að sitja fundi borgarráðs þegar til umræðu eru málefni sem störf þeirra snerta og þess er óskað af borgarstjóra eða borgarráði.
Aðrar nefndir, ráð og stjórnir.
53. gr.
Kosning formanns – fundarboð.
Á fyrsta fundi nefndar skal kjósa formann hafi hann ekki verið kosinn í borgarstjórn og varaformann.
Borgarstjóri boðar nefnd saman til fyrsta fundar eða ákveður hver skuli gera það nema borgarstjórn hafi áður kosið formann. Formaður nefndar boðar eða lætur boða fundi í nefnd með a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara.
54. gr.
Skylt að sækja fundi – forföll – varamenn.
Nefndarmanni er skylt að sækja fundi nema lögmæt forföll hamli.
Þegar aðalmaður í nefnd flyst burt úr sveitarfélaginu, fellur frá eða forfallast varanlega á annan hátt tekur varamaður hans sæti nema borgarstjórnin ákveði að kjósa að nýju fulltrúa í nefndina. Þegar nefndarmaður forfallast um stundarsakir skal varamaður hans taka sæti í nefndinni. Séu aðalmaður og varamaður báðir forfallaðir á sami framboðsaðili rétt á að tilnefna fulltrúa af framboðslista sínum til setu á þeim fundi.
Hafi tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar haft samstarf um nefndarkosningar skal sá sem tilnefndi viðkomandi nefndarmann einnig tilnefna varamann hans sé eigi öðruvísi ákveðið í yfirlýsingu skv. 2. mgr. 24. gr. sveitarstjórnarlaga.
55. gr.
Fundir fyrir luktum dyrum – opnir fundir.
Nefndarfundur skal haldinn fyrir luktum dyrum og er óheimilt að greina opinberlega frá ummælum á nefndarfundum sem fram koma hjá einstökum nefndarmönnum eða öðrum sem fundinn sitja. Nefnd getur kvatt á sinn fund einstaka starfsmenn Reykjavíkurborgar. Enn fremur getur nefnd boðið aðila að koma á sinn fund til viðræðna um tiltekin mál.
Nefndir borgarstjórnar geta ákveðið að efna til opinna funda með borgarbúum, íbúum einstakra hverfa, félögum eða hagsmunahópum öðrum þegar þær hafa til meðferðar mál sem eðlilegt þykir að fjalla um á þann hátt áður en þau eru afgreidd í viðkomandi nefnd. Fagráð sem kosin eru skv. B-lið 61. gr. skulu að jafnaði halda einn opinn fund árlega.
56. gr.
Fundarstjórn.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði II. og III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í nefndum, ráðum og stjórnum Reykjavíkurborgar eftir því sem við á.
57. gr.
Verkefni – sameining.
Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum borgarstjórnar fer eftir því sem ákveðið er í lögum, reglugerðum eða samþykktum borgarstjórnar fyrir einstakar nefndir, ráð eða stjórnir.
Heimilt er borgarstjórn að sameina nefndir þannig að ein nefnd fari með verkefni á fleiri en einu sviði þótt kveðið sé á um í lögum að kjósa skuli sérstaka nefnd til þess að fara með tiltekin verkefni.
58. gr.
Fullnaðarafgreiðsla.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur borgarstjórn ákveðið með viðauka við samþykkt þessa að fela nefnd, ráði eða stjórn á vegum Reykjavíkurborgar fullnaðarafgreiðslu mála sem ekki varða verulega fjárhag borgarsjóðs nema lög eða eðli máls mæli sérstaklega gegn því.
Á sama hátt og með sömu skilyrðum og getur í 1. mgr. er borgarstjórn heimilt að fela öðrum aðilum innan stjórnsýslu Reykjavíkurborgar fullnaðarafgreiðslu mála. Borgarstjórn, borgarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.
Sá aðili sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu skv. 2. mgr., eða þriðjungur fulltrúa ef um nefnd, ráð eða stjórn er að ræða, sbr. 1. mgr., getur ávallt óskað eftir því að borgarstjórn, borgarráð eða viðkomandi nefnd samkvæmt samþykktum um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar taki ákvörðun í máli.
Þegar borgarstjórn neytir heimildar skv. 1. eða 2. mgr. skal jafnframt kveðið á um það hvernig fara skuli með endurupptöku mála sem hljóta afgreiðslu samkvæmt þessum ákvæðum.
59. gr.
Fundargerðir.
Nefndir, ráð og stjórnir borgarstjórnar skulu halda gerðabækur. Ritari nefndar skal færa fundargerð í gerðabók. Um ritun fundargerða nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun fundargerða borgarstjórnar, sbr. 2. mgr. 15. gr.
60. gr.
Staðfesting borgarráðs.
Ef ályktanir eða tillögur þarfnast staðfestingar borgarráðs og/eða borgarstjórnar ber að taka þær fyrir sem sérstakan dagskrárlið. Hafi ályktun nefndar, ráðs eða stjórnar í för með sér fjárútlát umfram áður veittar heimildir skal ályktunin ætíð lögð fyrir borgarráð.
61. gr.
Kosning í ráð.
Borgarstjórn kýs eftirtalin ráð til að fara með tiltekin mál eftir sérstökum samþykktum sínum og því sem lög mæla fyrir um:
A. Til eins árs:
Sjö borgarfulltrúa í borgarráð og jafnmarga til vara.
B. Til fjögurra ára:
- Sjö menn í íþrótta- og tómstundaráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í leikskólaráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í mannréttindaráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í menningar- og ferðamálaráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í menntaráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í skipulagsráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í stjórn eignasjóðs og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í umhverfis- og samgönguráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í velferðarráð og sjö til vara. Formannskjör.
Formenn þeirra ráða sem talin eru upp í B-lið skulu vera borgarfulltrúar eða varaborgarfulltrúar.
62. gr.
Kosning annarra nefnda.
Til viðbótar við þær nefndir sem borgarstjórn kýs skv. 61. gr. kýs hún eftirtaldar nefndir eftir sérstökum samþykktum sínum og því sem lög mæla fyrir um:
A. Til eins árs:
- Fimm menn í stjórn Faxaflóahafna sf. og fimm til vara. Formannskjör.
- Fimm menn í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sf. og fimm til vara. Formannskjör.
B. Til fjögurra ára:
- Einn mann í almannavarnanefnd og tvo til vara.
- Fimm menn í barnaverndarnefnd og fimm til vara. Formannskjör.
- Þrjá menn í framtalsnefnd og þrjá til vara. Formannskjör.
- Fimm menn í heilbrigðisnefnd og fimm til vara. Formannskjör.
- Sjö menn í hvert hverfisráð og sjö til vara. Formannskjör.
- Þrjá menn í innkauparáð og þrjá til vara. Formannskjör.
- Þrjá menn í stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og þrjá til vara.
- Tvo skoðunarmenn ársreiknings Reykjavíkurborgar og tvo til vara.
C. Kjörstjórnir.
Borgarstjórn kýs fulltrúa í yfirkjörstjórnir, hverfiskjörstjórnir og undirkjörstjórnir, auk varamanna, eftir ákvæðum viðkomandi laga.
D. Aðrar stjórnir, ráð og nefndir.
Borgarstjórn/borgarráð kýs eða tilnefnir fulltrúa sína í ýmsar stjórnir, ráð eða nefndir samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða eða samkvæmt sérstökum samþykktum.
63. gr.
Ad-hoc nefndir.
Borgarráð getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður við lok kjörtímabils borgarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið. Borgarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.
V. KAFLI
Um framkvæmdastjórn og starfslið sveitarfélagsins.
Borgarstjóri.
64. gr.
Ráðning borgarstjóra.
Borgarstjórn ræður borgarstjóra. Ráðningartími skal vera til loka kjörtímabils borgarstjórnar. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á ráðningartíma er þrír mánuðir.
65. gr.
Verkefni.
Borgarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana þeirra sem borgarstjórn tekur og framkvæmd á málefnum borgarinnar að því leyti sem borgarstjórn hefur ekki ákveðið annað um tiltekin mál.
66. gr.
Fundarseta og atkvæðisréttur.
Borgarstjóri á sæti á fundum borgarstjórnar og borgarráðs og hefur þar sömu réttindi og skyldur og borgarfulltrúi nema annað sé sérstaklega fram tekið í þessari samþykkt. Ekki hefur hann atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt borgarfulltrúi/borgarráðsmaður. Hann hefur óbundið málfrelsi og tillögurétt á fundum borgarstjórnar og borgarráðs.
Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda sveitarfélagsins með sömu réttindum.
67. gr.
Prókúra.
Borgarstjóri er prókúruhafi borgarsjóðs. Hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna borgarinnar, lántökur og aðrar skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki borgarstjórnar þarf til.
Borgarstjóra er heimilt með samþykki borgarstjórnar að veita öðrum starfsmönnum borgarinnar prókúru.
68. gr.
Æðsti yfirmaður starfsmanna – staðgenglar.
Borgarstjóri er æðsti yfirmaður starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og starfsmannasviðs gegnir störfum borgarstjóra í fjarveru hans og öðrum forföllum, en skrifstofustjóri borgarstjórnar í fjarveru sviðsstjóra stjórnsýslu- og starfsmannasviðs. Borgarstjórn getur þó ákveðið aðra tilhögun í fjarveru borgarstjóra á fundum borgarstjórnar.
Starfsmenn í stjórnunarstöðum.
69. gr.
Borgarráð ræður æðstu stjórnendur.
Borgarráð ræður starfsmenn í helstu stjórnunarstöður hjá Reykjavíkurborg, svo sem sviðsstjóra og yfirmenn stofnana og fyrirtækja, og veitir þeim lausn frá störfum.
70. gr.
Auglýsing starfa.
Lausar stöður skulu auglýstar til umsóknar í samræmi við reglur um réttindi og skyldur starfsmanna Reykjavíkurborgar.
71. gr.
Réttindi og skyldur.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna Reykjavíkurborgar fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju sinni og/eða ákvæðum ráðningarsamninga og reglum um réttindi og skyldur starfsmanna eftir því sem við á.
VI. KAFLI
Um fjármálastjórn sveitarfélagsins.
72. gr.
Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.
Fyrir lok desembermánaðar ár hvert skal borgarstjórn að jafnaði afgreiða fjárhagsáætlun borgarsjóðs, fyrirtækja og stofnana Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár að undangengnum tveimur umræðum í borgarstjórn.
Form fjárhagsáætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings. Í fjárhagsáætlun skal koma fram rekstrar- og framkvæmdaáætlun, áætlun um efnahag í upphafi og lok árs, auk áætlaðra fjármagnshreyfinga.
Fjárhagsáætlun samkvæmt þessari grein skal vera meginregla um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjármálastjórn borgarinnar á viðkomandi reikningsári. Við gerð fjárhagsáætlunar skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu borgarsjóðs og stofnana borgarinnar.
Borgarstjórn skal árlega gæta þess svo sem kostur er að heildarútgjöld borgarinnar, þar með talin rekstrarútgjöld, fari ekki fram úr heildartekjum hennar.
73. gr.
Samþykki borgarstjórnar.
Útgjöld sem ekki eru lögbundin, samningsbundin eða leiðir af fyrri samþykkt borgarstjórnar má ekki greiða nema til komi samþykki borgarstjórnar. Samþykki borgarstjórn fjárveitingu sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun skal jafnframt kveðið á um hvernig útgjöldum skuli mætt.
74. gr.
Breytingar á fjárhagsáætlun.
Hafi forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlunar breyst er borgarstjórn heimilt að endurskoða fjárhagsáætlunina. Slíkar breytingar afgreiðir borgarstjórn við eina umræðu.
75. gr.
Þriggja ára áætlun.
Til viðbótar árlegri fjárhagsáætlun skal borgarstjórn semja og fjalla um þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar. Áætlunin skal vera rammi um árlegar fjárhagsáætlanir Reykjavíkurborgar og unnin og afgreidd af borgarstjórn innan tveggja mánaða frá afgreiðslu árlegrar fjárhagsáætlunar. Form þriggja ára áætlunar skal vera í samræmi við form ársreiknings og stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru skv. 4. mgr. 67. gr. sveitarstjórnarlaga um þriggja ára áætlun.
76. gr.
Ársreikningur.
Ársreikningur Reykjavíkurborgar skal fullgerður, endurskoðaður og tilbúinn til afgreiðslu í borgarstjórn fyrir lok aprílmánaðar.
Borgarstjórn skal taka til umfjöllunar og afgreiðslu álit, greinargerðir og tillögur borgarendurskoðanda og skoðunarmanna.
Borgarstjórn skal hafa lokið fullnaðarafgreiðslu ársreikninga eigi síðar en 1. júní ár hvert.
Borgarfulltrúar og borgarstjóri skulu árita ársreikninginn.
Samþykkt þessi, sem borgarstjórn Reykjavíkur hefur sett samkvæmt ákvæðum 10. og 25. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, nr. 638/2001, með síðari breytingum.
Félagsmálaráðuneytinu, 7. desember 2007.
F. h. r.
Sesselja Árnadóttir.
Stefanía Traustadóttir.
VIÐAUKAR
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 19. desember 2007