Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

C deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Jersey

Undirritunardagur

5. janúar 2010

Útgáfudagur

30. desember 2010

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 2/2010

5. janúar 2010

AUGLÝSING

um upplýsingaskiptasamning og tvísköttunarsamninga við Jersey.

Samningur milli Íslands og Jersey um upplýsingaskipti um skattamál, samningur til að komast hjá tvísköttun einstaklinga, samningur til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum og samningur um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja, sem gerðir voru í Helsinki 28. október 2008, öðluðust gildi 3. desember 2009.

Samningurinn um upplýsingaskipti um skattamál er birtur sem fylgiskjal 1 með auglýsingu þessari, samningurinn til að komast hjá tvísköttun einstaklinga sem fylgiskjal 2, samningurinn til að komast hjá tvísköttun fyrirtækja sem reka skip eða loftför í flutningum á alþjóðaleiðum sem fylgiskjal 3 og samningurinn um aðgang að framkvæmd gagnkvæms samkomulags í tengslum við leiðréttingu á hagnaði tengdra fyrirtækja sem fylgiskjal 4.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 5. janúar 2010.

Össur Skarphéðinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

C deild - Útgáfud.: 30. desember 2010