Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Fangelsismál
Undirritunardagur
11. júní 2026
Útgáfudagur
18. júní 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 55/2026
11. júní 2026
LÖG
um breytingu á lögum um fullnustu refsinga, nr. 15/2016 (brottvísun og afplánun erlendra fanga).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Á eftir orðinu „fanga“ í 1. málsl. 1. mgr. 31. gr. laganna kemur: ef ekki liggur fyrir ákvörðun um að vísa honum úr landi að afplánun lokinni.
2. gr.
Við 33. gr. laganna bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Að ekki liggi fyrir ákvörðun um að vísa fanga úr landi að afplánun lokinni.
3. gr.
2. málsl. 3. mgr. 80. gr. laganna orðast svo: Sama gildir liggi fyrir endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi um að vísa fanga úr landi að afplánun lokinni.
4. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir 3. mgr. 80. gr. er heimilt að veita fanga lausn til reynslu þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn liggi fyrir endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi um að vísa honum úr landi að afplánun lokinni.
Ákvæði þetta nær til allra þeirra dóma sem kveðnir hafa verið upp fyrir gildistöku ákvæðis þessa og þegar eru komnir til fullnustu til Fangelsismálastofnunar sem og allra annarra dóma sem stofnuninni berast fyrir 1. júlí 2027.
Ákvæði þetta fellur úr gildi 1. júlí 2027.
5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 11. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 18. júní 2026