Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Árnessýsla

Undirritunardagur

13. febrúar 2026

Útgáfudagur

27. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 197/2026

13. febrúar 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Hrunamannahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Hrunamannahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Holtabyggð 217, L199172, Holtabyggð 218, L194904, breytt lóðarmörk, stækkun byggingarreita og aukið nýtingarhlutfall.

Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Holtabyggðar 217, L199172, og Holtabyggðar 218, L194904. Í breytingunni felst að lóðarmörk eru aðlöguð til að koma fyrir aðkomuvegi að lóð 217. Einnig verða byggingarreitir á lóðunum stækkaðir og nýtingarhlutfall hækkar.

Samþykkt í sveitarstjórn 4. desember 2025.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 13. febrúar 2026.

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,

Sigríður Kristjánsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 27. febrúar 2026

Tengd mál