Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Garðabær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Garðabær

Undirritunardagur

13. mars 2015

Útgáfudagur

16. mars 2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 253/2015

13. mars 2015

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Garðabæ.

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt eftirfarandi deiliskipulag:

  1. Urriðaholt-Norðurhluti, 2. áfangi, deiliskipulag.
    Tillagan gerir ráð fyrir 179-198 íbúðareiningum í blandaðri byggð. Þar af verða um 139-158 íbúðir í fjölbýli, 24 í raðhúsum, 12 í parhúsum og 4 í einbýlishúsum. Leitast er við að skapa fjölbreytni í húsagerðum og lifandi tengsl bygginga og göturýma.

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt eftirfarandi breytingar á deiliskipulagi:

  1. Mosagata, breyting á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts.
    Svæðið sem breytingin nær til er 1.426 m². Við breytinguna fjölgar íbúðum um 22 úr 79 í 101. Þar af fjölgar fjölbýlisíbúðum úr 72 í 89 en sérbýlisíbúðum fjölgar úr 7 í 12. Sérbýlisíbúðir voru raðhús en verða parhús, þar af verða 8 neðan götu en 4 ofan götu. Bílastæðum fjölgar úr 170 í 233. Lóðamörk ofan fjölbýlishúsa breytast lítillega og svæðið sem skipulagið nær til stækkar lítillega til norðurs og austurs.
  2. Bæjargata 11-19, breyting á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts.
    Breytingin gerir ráð fyrir því að ákvæði um hæð raðhúsagerðar R3 á lóðinni breytist úr 3 hæðum í 2-3 hæðir.
  3. Urriðaholtsstræti 6-8, breyting á deiliskipulagi Urriðaholts, viðskiptastrætis.
    Breytingin gerir ráð fyrir því að lóðin minnki úr 5.261 m² í 3.899 m² eða um 1.362 m². Mörk deiliskipulagsins breytast. Bílastæðum á lóðinni fækkar um 12.
  4. Holtsvegur 37 og 39, breyting á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts.
    Breytingin gerir ráð fyrir því að íbúðum í fjölbýlishúsinu að Holtsvegi nr. 37 fjölgi um 3 og að Holtsvegi nr. 39 um tvær. Einnig bætist við inndregin hæð á báðum húsum þannig að viðmiðunarhæðir verði 6 hæðir í stað 5 að Holtsvegi nr. 37 og 5 hæðir í stað 4 að Holtsvegi nr. 39. Hámarkshæð húss nr. 37 verður 15,5 m í stað 14,5 m og hámarkshæð húss nr. 39 verður 12,5 m í stað 15,5 m. Breytingar verða á fjölda bílastæða á lóð og í bílageymslum á báðum lóðum. Heildarbyggingarmagn á lóðunum er óbreytt.
  5. Kauptún 4, breyting á deiliskipulagi Kauptúns, verslunar- og þjónustusvæði í Urriðaholti.
    Breytingin gerir ráð fyrir auknu byggingarmagni á lóðinni Kauptúni 4 um 1.500 m² úr 21.000 m² í 22.500 m² og að lágmarksfjöldi bílastæða fyrir lóðina verði 1:26 í stað 1:25.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Garðabæ, 13. mars 2015.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.

B deild - Útgáfud.: 16. mars 2015

Tengd mál