Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
24. janúar 2025
Útgáfudagur
6. febrúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 4/2025
24. janúar 2025
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingum á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerðir öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 130/2025 um (45.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/80 frá 13. janúar 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 1 með auglýsingu þessari.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/125 frá 20. janúar 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali 2 með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 24. janúar 2025.
Hanna
Katrín
Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.
Svava Pétursdóttir.
C deild - Útgáfud.: 6. febrúar 2025