Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Félagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

18. nóvember 2025

Útgáfudagur

2. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1291/2025

18. nóvember 2025

REGLUR

Hafnarfjarðarkaupstaðar um skammtímadvöl.

I. KAFLIAlmenn ákvæði.

1. gr.Lagagrundvöllur og markmið.

Í reglum þessum er kveðið á um útfærslu á skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni sem sveitarfélaginu er skylt að veita, sbr. reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um stuðning við börn og fjölskyldur, 17. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (hér eftir lög um þjónustu við fatlað fólk), reglugerð nr. 1037/2018 um starfsemi og aðbúnað á skammtímadvalarstöðum og reglugerð nr. 1035/2018 um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma eftir þjónustu.

Markmið með skammtímadvöl er að létta álagi á fjölskyldum fatlaðra barna og ungmenna og gefa þeim möguleika á aukinni félagslegri þátttöku.

II. KAFLISkilyrði fyrir veitingu þjónustu og inntak.

2. gr.Réttur til þjónustu.

Skammtímadvöl er ætluð fötluðum börnum og ungmennum sem vegna mikilla umönnunarþarfa, umfram jafnaldra, þurfa á skammtímadvöl að halda. Skammtímadvöl er ætluð börnum sem falla undir umönnunarflokka 1, 2 og 3 eins og þeir eru skilgreindir í 5. gr. reglugerðar nr. 504/1997 um fjárhagslega aðstoð við framfærendur fatlaðra og langveikra barna.

Umsækjandi skal uppfylla öll eftirtalin skilyrði til að fá stuðning samkvæmt reglum þessum:

  1. Umsækjandi og barn/börn hans sem umsókn lýtur að skulu eiga lögheimili í Hafnarfirði þegar sótt er um eða að mál viðkomandi barns/barna sé til vinnslu hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar.
  2. Umsækjandi skal hafa forsjá barns/barna sem umsókn lítur að.
  3. Umsækjandi og barn/börn hans skulu vera metin í þörf fyrir stuðning samkvæmt faglegu mati.

Heimilt er einnig að veita fullorðnu fötluðu fólki með langvarandi stuðningsþarfir, sem býr í foreldrahúsum, skammtímadvöl meðan beðið er eftir annarri þjónustu eða heimili.

Umsækjandi sem er með lögheimili utan Hafnarfjarðar getur sótt um stuðning samkvæmt reglum þessum en skilyrði er að umsækjendur skrái lögheimili sitt í Hafnarfirði þegar stuðningur hefst.

3. gr. Inntak þjónustu.

Samningur um skammtímadvöl er tímabundinn. Þjónustutími skammtímadvalar getur verið allt frá 1 upp í 7 sólarhringa á fjögurra vikna fresti að jafnaði. Hægt er að gera undantekningu þar á, að undangengnu mati ráðgjafa, í allt að 15 sólarhringa á mánuði. Sé talin þörf fyrir þjónustu í meira en 15 sólarhringa á mánuði í sex mánuði samfleytt skal unnin einstaklingsbundin þjónustuáætlun um aukna aðstoð á heimili notandans svo unnt sé að tryggja gæði þjónustunnar í samráði við fjölskyldu og aðra þjónustuaðila. Þurfi viðkomandi annars konar og meiri þjónustu en unnt er að veita á heimili fjölskyldu hans samhliða skammtímavistun skal vísa málefni hans til sérfræðingateymis skv. 20. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk.

Starfsemi og aðbúnaður á skammtímadvalarstöðum fyrir fötluð börn, ungmenni og fullorðna skal taka mið af aldri þeirra, aðstæðum og stuðningsþörf.

III. KAFLIUmsóknarferli, mat og afgreiðsla.

4. gr. Umsókn og mat á stuðningsþörf.

Umsókn um skammtímadvöl er hægt að nálgast á heimasíðu Hafnarfjarðar, www.hafnarfjordur.is og í þjónustuveri Hafnarfjarðar. Umsókn skal undirrituð eða staðfest með rafrænum skilríkjum af hálfu umsækjanda.

Þegar umsókn hefur verið móttekin er umsækjanda og eftir atvikum aðstandanda/tengilið boðið í viðtal til að afla frekari upplýsinga og meta þörf fyrir skammtímadvöl. Starfsmenn meta þörf fyrir skammtímadvöl í samráði við umsækjanda og/eða tengilið. Við matið er horft til aldurs, eðlis og umfangs fötlunar, mats á stuðningsþörf sem og annarrar þjónustu sem veitt er og félagslegra aðstæðna. Einnig er óskað eftir upplýsingum frá fagaðilum ef þörf krefur, með framvísun læknisvottorðs og/eða greinargerð frá viðurkenndum greiningaraðila, þar sem fram kemur mat á þörf viðkomandi fyrir stuðning.

5. gr.Afgreiðsla umsóknar.

Að loknu mati er umsókn lögð fyrir deildarfund í stuðnings- og stoðþjónustuteymi. Afgreiðsla umsóknar byggir á fyrirliggjandi faglegu mati og öðrum gögnum. Niðurstaðan skal vera skrifleg og tilkynnt umsækjanda með formlegum hætti, innan sjö daga frá ákvörðun. Sé umsókn hafnað, skal umsækjanda jafnframt kynntur réttur sinn til áfrýjunar til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.

Sé ekki unnt að hefja þjónustu strax og umsókn er samþykkt skal, á grundvelli laga um þjónusta við fatlað fólk, tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær þjónustan verði veitt. Ef fyrirséð er að þjónusta sem sótt var um geti ekki hafist innan þriggja mánaða frá samþykkt umsóknar skal leiðbeina umsækjanda um þau úrræði sem hann hefur á biðtíma og aðra þjónustu sem er í boði.

6. gr. Heimild til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.

Starfsmenn í stuðnings- og stoðþjónustuteymi taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.

IV. KAFLISkipulag og framkvæmd.

7. gr. Umsóknarferli og úthlutanir.

Þegar kemur að úthlutun nýrra umsókna í skammtímadvöl þá forgangsraðar hvert sveitarfélag umsóknum um skammtímadvöl sem síðan eru lagðar fyrir í samráðshópi sveitarfélaga. Í samráðshóp sitja starfsmenn frá hverju sveitarfélagi fyrir sig ásamt forstöðumanni viðkomandi skammtímadvalar. Hópurinn gerir tillögu að úthlutun. Umsækjanda er tilkynnt um úthlutun eins fljótt og kostur er, eftir ákvörðun.

8. gr. Gæði þjónustunnar.

Þjónustu- og rekstraraðili sem ber faglega og fjárhagslega ábyrgð á þjónustu skammtímadvalar skal tryggja að aðstæður miðist við aldur og þjónustuþarfir þeirra sem þar dvelja á hverjum tíma.

Hver og einn notandi fær tengilið sem er starfsmaður skammtímadvalarinnar. Hlutverk tengils er að samræma þjónustu með gerð einstaklingsbundinnar þjónustuáætlunar ef við á. Þjónustu- og rekstraraðili skal á 12 mánaða fresti í það minnsta, framkvæma mat á gæðum þjónustunnar og ráðast í gerð umbótaáætlunar sé þess talin þörf.

9. gr. Umgjörð og aðbúnaður þjónustunnar.

Skammtímadvölin skal hæfa aldri og getu notenda sem þar dvelja á hverjum tíma eftir því sem best verður við komið.

10. gr.Hámarksfjöldi notenda á skammtímadvalarstað.

Fjöldi notenda á hverjum skammtímadvalarstað skal, alla jafna, ekki vera fleiri en sex á sama tíma. Við mat á hámarksfjölda notenda á hverjum tíma skal tekið mið af einstaklingsbundnum þörfum hvers og eins og aðstæðum á skammtímadvalarstað hverju sinni.

11. gr.Kostnaðarþátttaka.

Þjónusta í skammtímadvöl er notendum að kostnaðarlausu. Þeir skulu þó standa straum af kostnaði vegna frístunda og ferða á meðan á skammtímadvöl stendur. Notendur skammtímadvalar skulu ekki bera kostnað sem fellur til við starfsmannahald vegna þátttöku þeirra í frístundastarfi utan skammtímadvalar.

Notendur eldri en 18 ára skulu standa straum af kostnaði vegna fæðis meðan á dvöl stendur og greiða samkvæmt gjaldskrá hverju sinni. Gjaldskrá miðast við neysluviðmið Stjórnarráðs Íslands ár hvert.

12. gr.Starfsmannahald.

Forstöðumaður skammtímadvalar skal hafa háskólapróf á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda og reynslu sem nýtist í starfi. Jafnframt skal að minnsta kosti einn annar starfsmaður með fagmenntun vera til staðar á vökutíma. Starfsmenn skulu hafa grunnþekkingu á þjónustu við fatlað fólk og uppeldi barna ef við á. Rekstrarsveitarfélag tekur á sig ábyrgð á ráðningu starfsmanna.

Óheimilt er að ráða starfsmann sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. og XXIII. kafla, 211. gr. eða 218. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hafi starfsmaður verið dæmdur til refsingar fyrir brot á öðrum ákvæðum almennra hegningarlaga skal meta áhrif þess á hæfi viðkomandi til að gegna því starfi sem um ræðir, m.a. að teknu tilliti til eðlis starfsins og alvarleika brotsins.

13. gr.Ábyrgð.

Sveitarfélag ber ábyrgð á að aðbúnaður og þjónusta á skammtímadvalarstað sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Sú ábyrgð nær jafnt til þeirrar þjónustu sem veitt er á vegum sveitarfélags og annarra aðila sem veita þjónustu á grundvelli samninga við sveitarfélagið.

14. gr.Eftirlit.

Sveitarfélag annast eftirlit með starfsemi skammtímadvalarstaða, sbr. 5. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Eftirlitið getur verið í formi úttekta á gæðum sem byggjast á kröfulýsingum, þar sem aðstæður eru skoðaðar.

VI. KAFLIÁfrýjun og riftun á samningi.

15. gr. Rangar eða villandi upplýsingar.

Þjónusta sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær er í öllum tilfellum endurskoðuð og samningum rift ef þurfa þykir.

16. gr. Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Notandi getur skotið ákvörðun teymisfunda til fjölskylduráðs innan fjögurra vikna frá því ákvörðun er tilkynnt. Niðurstöðu fjölskylduráðs Hafnarfjarðar má kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að notanda var kunngerð ákvörðun fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.

VII. KAFLIGildistaka.

17. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar með stoð í 17. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.

Reglurnar voru samþykktar af fjölskylduráði 21. október 2025.

Reglurnar voru samþykktar af bæjarstjórn Hafnarfjarðar 5. nóvember 2025.

Reglur þessar öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um skammtímadvöl fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 1161/2020.

Hafnarfirði, 18. nóvember 2025.

Guðlaug Ósk Gísladóttir,

sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs.

B deild — Útgáfudagur: 2. desember 2025

Tengd mál