Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

26. janúar 2023

Útgáfudagur

9. febrúar 2023

Leiðréttingar

13. febrúar 2023

HTML-texti og PDF-skjal: Í stað „nr. 280/2015“ í heiti reglnanna og upphafi 1. gr. komi: nr. 283/2015

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 119/2023

26. janúar 2023

REGLUGERÐ

um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis, nr. 280/2015, með síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis nr. 280/2015:

1.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/154 frá 3. febrúar 2022 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2011/72 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 1.5.
1.6 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/2086 frá 27. október 2022 um framkvæmd ákvörðunar (SSUÖ) 2011/72 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 1.6.
1.7 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/159 frá 23. janúar 2023 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2011/72 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum einstaklingum og rekstrareiningum með tilliti til ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 1.7.
2.5 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2019/132 frá 28. janúar 2019 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.5.
2.6 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2020/115 frá 27. janúar 2020 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.6.
2.7 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/49 frá 22. janúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.7.
2.8 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/113 frá 27. janúar 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.8.
2.9 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/149 frá 3. febrúar 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.9.
2.10 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/1356 frá 4. ágúst 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.10.
2.11 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/2073 frá 27. október 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.11.
2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2023/156 frá 23. janúar 2023 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 101/2011 um þvingunaraðgerðir sem beinast gegn tilteknum aðilum, rekstrareiningum og stofnunum í ljósi ástandsins í Túnis, sbr. fylgiskjal 2.12.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur út gildi reglugerð nr. 543/2011 um þvingunaraðgerðir gegn tilteknum aðilum í Túnis.

Utanríkisráðuneytinu, 26. janúar 2023.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2023

Tengd mál