Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Matvælaráðuneytið
Málaflokkur
Undirritunardagur
7. mars 2025
Útgáfudagur
20. mars 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 10/2025
7. mars 2025
AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625.
1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 295/2025 um (6.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/354 frá 21. febrúar 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd með samþykkta eftirlitsáætlun og skrárnar yfir þriðju lönd sem hafa heimild til að flytja inn tilteknar lagarafurðir til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 29. gr. b laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 7. mars 2025.
Hanna
Katrín
Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.
Svava Pétursdóttir.
C deild - Útgáfud.: 20. mars 2025