Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
29. janúar 2026
Útgáfudagur
14. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 363/2026
29. janúar 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar vegna breyttra skipulagsákvæða fyrir miðsvæði M5 og M6.
Skipulagsstofnun staðfesti 29. janúar 2026 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036, sem samþykkt var í bæjarstjórn 3. desember 2025.
Í breytingunni felst nánari skilgreining á skilyrðum fyrir rekstri verslunar- og þjónustustarfsemi á miðsvæðum M5 og M6.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 29. janúar 2026.
Ólafur Árnason.
B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026