Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fiskeldi

Undirritunardagur

28. maí 2026

Útgáfudagur

2. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 623/2026

28. maí 2026

REGLUGERÐ

um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1377/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/620 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 að því er varðar samþykki fyrir sjúkdómalausri stöðu og bólusetningarlausri stöðu tiltekinna aðildarríkja eða svæða eða hólfa þeirra að því er varðar tiltekna skráða sjúkdóma og samþykki fyrir útrýmingaráætlunum vegna þessara skráðu sjúkdóma (dýraheilbrigði).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 6. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/293 frá 9. febrúar 2026 um breytingu á I. til IV. viðauka, VII., VIII., XI. og XIII. viðauka og um leiðréttingu á VIII. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/620 að því er varðar samþykki fyrir eða afturköllun á sjúkdómalausri stöðu tiltekinna aðildarríkja eða svæða þeirra eða hólfa að því er varðar tiltekna skráða sjúkdóma og samþykki fyrir útrýmingaráætlunum vegna tiltekinna skráðra sjúkdóma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 112/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 50.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 229/2024 og þeim takmörkunum sem leiða af I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998, lögum um varnir gegn fisksjúkdómum, nr. 60/2006, og lögum um fiskeldi, nr. 71/2008.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 28. maí 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild — Útgáfudagur: 2. júní 2026

Tengd mál