Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykjanesbær

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjanesbær

Undirritunardagur

14. janúar 2026

Útgáfudagur

16. janúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 14/2026

14. janúar 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Reykjanesbæ.

Bolafótur 19-25.

Deiliskipulagstillaga fyrir Bolafót hlaut málsferil skv. 41. gr. skipulagslaga og var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 18. nóvember 2025. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðir Bolafótar 19-25, sem fellur úr gildi við gildistöku nýs deiliskipulags. Deiliskipulagssvæðið stækkar til vesturs. Deiliskipulagssvæðið er 2,2 ha að stærð eftir breytingu. Afmarkaðar eru sjö nýjar raðhúsalóðir en jafnframt eru felld úr gildi lóðamörk fyrir lóðir 21- 25 við Bolafót.

Deiliskipulagið tekur þegar gildi.

Nesvegur 50.

Deiliskipulagstillaga fyrir Nesveg 50 hlaut málsferil skv. 41. gr. skipulagslaga og var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 18. nóvember 2025. Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi svæðisins, sem staðfest var 15. mars 2022. Skipulagssvæðið nær nú einnig utan um lóð austan Hafnavegs þar sem fyrirhuguð er vatnstaka en vestan megin er aukið byggingarmagn.

Breytingin tekur þegar gildi.

Reykjanesbæ, 14. janúar 2026.

Kjartan M. Kjartansson bæjarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 16. janúar 2026

Tengd mál