Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Borgarbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Borgarbyggð

Undirritunardagur

26. maí 2026

Útgáfudagur

9. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 653/2026

26. maí 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Borgarbyggð.

Niðurskógur 1, óveruleg breyting á deiliskipulagi.

Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi Niðurskóga í landi Húsafells III, á fundi sínum 21. maí 2026. Breytingin tekur til lóðarinnar Niðurskógar 1 og felur í sér stækkun á byggingarreit úr 15 x 15 m í 15 x 25 m og verður hann þá 375 m². Aðkoma að lóðinni er færð norðar.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.

Borgarbyggð, 26. maí 2026.

F.h. skipulagsfulltrúa,

Ásgerður Hafsteinsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.

B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026

Tengd mál