Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfisráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Vatnamál, Eyjafjarðarsýsla

Undirritunardagur

12. mars 2008

Útgáfudagur

1. apríl 2008

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 306/2008

12. mars 2008

SAMÞYKKT

um fráveitur í Eyjafjarðarsveit.

I. KAFLI

Um fráveitur.

1. gr.

Samþykkt þessi gildir

2. gr.

Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit starfrækir fráveitu í Reykárhverfi. Fráveita Eyjafjarðarsveitar er í eigu sveitarfélagsins og rekin sem B-hluta fyrirtæki með sjálfstæðan fjárhag. Rekstur og framkvæmdir á vegum veitunnar eru kostaðar af eigin tekjum af fráveitugjaldi, lántökum eða beinu framlagi frá sveitarsjóði eftir því sem sveitarstjórn ákveður í fjárhagsáætlun. Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit getur tekið að sér að stofna og/eða reka fráveitur á öðrum svæðum innan sveitarfélagsins. Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar fer með stjórn fráveitunnar.

3. gr.

Eigendur fasteigna í nágrenni fráveitunnar en utan landareignar sveitarfélagsins í Reykárhverfi geta fengið aðgang að fráveitunni, ef þeir þess óska og sveitarstjórn samþykkir. Umsækjandi greiðir þá kostnað við lagningu fráveitu frá eigin húsi að stofnæð og árlegt tæmingargjald í samræmi við gjaldskrá hverju sinni. Sveitarstjórn getur ákveðið og gert eigendum þessara fasteigna skylt að tengjast fráveitunni sbr. 6. gr.

4. gr.

Fráveitan veitir fráveituvatni sem getur verið húsaskólp, iðnaðarskólp, iðnaðarvatn, ofanvatn, frárennslisvatn hitaveitu og ræsisvatn frá byggingum á þjónustusvæðinu um fráveitulagnir til viðtaka. Einföld fráveita tekur við skólpi og ofanvatni í eina fráveitulögn, en tvöföld fráveita veitir skólpi og ofanvatni í tveimur aðskildum veitum. Sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit á allar holræsalagnir fráveitu, útrásir, stofnræsi, götuholræsi, ofanvatnsræsi í götum og opnum svæðum og götufráræsi að fráræsum húseigna. Ennfremur allan fráveitubúnað á þjónustusvæðinu, svo sem brunna, niðurföll, rotþrær, dælustöðvar og hreinsistöðvar.

5. gr.

Þar sem fráveita sveitarfélagsins nær til, skal húseigendum séð fyrir götufráræsi frá götuholræsi að lóðamörkum húseigna. Þar sem fráveitan liggur um lóðir skal séð fyrir tengigrein á holræsalögn.

6. gr.

Húseigendum, sem eiga húseignir við vegi eða opin svæði þar sem fráveita sveitarfélagsins liggur, er skylt að leggja á sinn kostnað fráræsi frá húseignum sínum og tengja þau við fráveituna á lóðarmörkum. Að öðru leyti gilda ákvæði reglugerðar um fráveitur og skólp nr. 798/1999.

7. gr.

Þar sem fráveita sveitarfélagsins nær ekki til, gildir samþykkt nr. 671/2003, um hreinsun og losun rotþróa á starfssvæði heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra, að undanteknum Húsavíkurbæ. Húseigandi kostar niðursetningu og annan frágang rotþróa og lagna svo og viðhald þeirra. Staðsetning rotþróa skal samþykkt af byggingarfulltrúa. Rotþró skal valinn þannig staður að auðvelt sé að komast að henni með tæki til hreinsunar, sbr. 11. gr. Hreinsun og tæming rotþróa í sveitarfélaginu fer fram á vegum Eyjafjarðarsveitar í samræmi við ákvæði í reglugerð um meðhöndlun seyru, nr. 799/1999.

8. gr.

Þegar tengja skal fráveitu húseigna við fráveitu sveitarfélagsins, skal sækja um það til sveitarstjórnar á þar til gerðum eyðublöðum. Umsóknir skulu undirritaðar af húseigendum eða fullgildum umboðsmönnum þeirra ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að vinna.

Umsóknum skulu fylgja teikningar af fráveitulögnum húsa og lóða og fráveitum frá húseignum sem tengja á fráveitu sveitarfélagsins.

9. gr.

Teikningar skulu fylgja almennum reglum um hönnun fráveitulagna í húsum, sbr. byggingarreglugerð og byggingarskilmála. Allt efni skal standast kröfur um efni og vinnu sem gerðar eru á hverjum tíma.

10. gr.

Byggingareftirlit sveitarfélagsins skal hafa eftirlit með því að fráveitulagnir frá húseignum séu lagðar samkvæmt samþykktum teikningum. Áður en lagnir eru huldar skal einnig taka út og viðurkenna fráveitu frá húseignum og tengingar þeirra við fráveitu sveitarfélagsins eða rotþrær.

11. gr.

Eigendum fasteigna er skylt að hlíta því að lagnir fráveitu sveitarfélagsins séu lagðar um lóðir þeirra eða lönd og heimila yfirferð um lóðir og lönd vegna viðhalds, endurnýjunar og hreinsunar fráveitunnar. Eyjafjarðarsveit er skylt að halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um og færa allt til fyrra horfs eins og við verður komið.

12. gr.

Húseigendum er skylt að halda vel við fráveitulögnum húseigna sinna og gæta þess að þær stíflist ekki.

Óheimilt er að láta í fráveitu sveitarfélagsins hvers kyns spilliefni, olíur, bensín, lífræn leysiefni eða annað það sem skemmt getur eða truflað rekstur fráveitukerfisins. Um mengunarvarnir fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum, og reglugerðum settum samkvæmt þeim.

Óheimilt er að láta matarleifar úr vaskakvörnum í fráveituna. Iðnaðarskólp sem veitt er í fráveitu skal forhreinsað og getur sveitarfélagið sett fram viðmiðunarmörk til að tryggja að tilskilin markmið náist, sbr. lið C, I. viðauka í reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp.

13. gr.

Þar sem hætta er á að fráveituvatn frá fráveitu sveitarfélagsins flæði til baka um fráræsislagnir frá húseigendum vegna vatnsborðsriss af völdum ofanvatns eða hárrar sjávarstöðu skulu húseigendur koma fyrir sjálfvirkum flóðlokum við gólfniðurföll.

II. KAFLI

Um fráveitu- og rotþróargjald.

14. gr.

Sveitarfélagið skal setja gjaldskrá til innheimtu gjalda vegna fráveitunnar og vegna tæmingar rotþróa. Hún skal birt í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Í gjaldskránni skulu vera ákvæði um:

  1. Gjöld vegna tenginga og lagningar fráveitu, skv. 15. gr.
  2. Fráveitugjöld, skv. 16. gr.
  3. Rotþróargjöld, skv. 17. gr.

Heimild til aukagjalds eða lækkunar eða niðurfellingar gjalda fer skv. 18. gr.

Gjöld skv. a lið skulu innheimt um leið og gatnagerðargjald. Gjöld skv. b- og c-lið skulu innheimt á sama hátt og fasteignagjöld til sveitarsjóðs Eyjafjarðarsveitar.

Gjöld þessi má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöld þessi lögveðréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði, sbr. lög um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, með síðari breytingum.

15. gr.

Sveitarfélagið getur innheimt gjald vegna lagningar frárennslislagna frá lóðarmörkum húseiganda og tengingar við holræsakerfi sveitarfélagsins.

16. gr.

Af fasteignum í Eyjafjarðarsveit, sem liggja við vegi, götur eða opin svæði og tengjast fráveitulögnum sveitarfélagsins skal árlega greiða fráveitugjald og skal því varið til að standa straum af kostnaði við fráveitu sveitarfélagsins. Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum. Fráveitugjald greiðist af skráðum eiganda fasteignar ef um eignarlóð er að ræða en af leigutaka ef um leigulóð er að ræða og bera þessir aðilar ábyrgð á greiðslu gjaldsins.

17. gr.

Fyrir hreinsun og tæmingu á rotþró skal húseigandi greiða árlegt rotþróargjald sem standa skal undir kostnaði við verkið. Heimilt er að innheimta aukagjald af þeim húseignum þar sem um óvenjumikinn kostnað er að ræða við hreinsun og tæmingu eða þegar um sérstaka rotþró við útihús er að ræða. Gjald þetta má þó aldrei vera hærra en svo að nemi sannanlegum kostnaði við verkið.

18. gr.

Sveitarstjórn er heimilt að nýta sér heimild í 2. mgr. 87. gr. vatnalaga, nr. 15/1923, um sérstaka ívilnun gjalda og sérstakt aukagjald þar sem þannig háttar til. Aukagjald þetta má þó aldrei vera hærra en svo að nemi sannanlegum kostnaði við verkið. Einnig er sveitarstjórn heimilt að nýta sér heimild í lögum nr. 137/1995 um að fella niður eða lækka fráveitu- og rotþróargjald sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða.

19. gr.

Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi heimildarlaga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

20. gr.

Samþykkt þessi er samþykkt af sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og staðfestist hér með samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, sbr. og 3. ml. 5. mgr. 4. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og samkvæmt X. kafla vatnalaga nr. 15/1923, til að öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 12. mars 2008.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. apríl 2008

Tengd mál