Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

1. júlí 2024

Útgáfudagur

1. júlí 2024

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 776/2024

1. júlí 2024

REGLUR

um stórar áhættuskuldbindingar fjármálafyrirtækja.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna stórar áhættuskuldbindingar í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.

2. gr.

Ákvörðun heildarfjárhæðar stórra áhættuskuldbindinga
og auðkenning á skuggabankastarfsemi.

Við ákvörðun á heildarfjárhæð áhættuskuldbindinga viðskiptavinar eða hóps tengdra viðskiptamanna skal fjármálafyrirtæki fara eftir ákvæðum reglugerðar (ESB) nr. 1187/2014, sbr. 3. gr.

Um viðmið fyrir auðkenningu á skuggabankastarfsemi fer eftir reglugerð (ESB) 2023/2779, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1187/2014 frá 2. október 2014 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til að ákvarða heildaráhættuskuldbindingu vegna viðskiptavinar eða hóps tengdra viðskiptavina að því er varðar viðskipti með undirliggjandi eignir, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50. frá 23. júlí 2020, bls. 344-348.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2779 frá 6. september 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina viðmið fyrir auðkenningu á skuggabankastarfsemi sem vísað er til í 2. mgr. 394. gr. reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 99/2024 frá 26. apríl 2024.

Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2023/2779 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union): https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX%3A32023R2779, birt í OJ deild L, þann 12. desember 2023.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 70. og 71. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, taka gildi þegar í stað. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 509/2017, um tæknilega staðla vegna stórra áhættuskuldbindinga.

Seðlabanka Íslands, 1. júlí 2024.

Ásgeir Jónsson Rannveig Júníusdóttir
seðlabankastjóri. framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 1. júlí 2024

Tengd mál