Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
27. nóvember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 32/2025
27. nóvember 2025
AUGLÝSING
um samning um Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum.
Hinn 9. september 2025 var franska utanríkisráðuneytinu afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samnings um Alþjóðastofnun um leiðarmerki í siglingum, sem gerður var í París 27. janúar 2021.
Samningurinn öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 9. október 2025 og er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 27. nóvember 2025.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
C deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025