Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
20. júní 2025
Útgáfudagur
4. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 769/2025
20. júní 2025
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar, samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Vesturbyggð og Launrétt, þéttbýlið Laugarási, lóðamörk og skipting lóðar.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Vesturbyggðar og Launaréttar í þéttbýlinu í Laugarási. Í breytingunni felst að lóðamörkum lóða nr. 1, 3 og 5 við Vesturbyggð er breytt og þær stækkaðar til samræmis við stærð þeirra í lóðarleigusamningum. Einnig er lóðinni Launrétt 3 skipt í tvær lóðir, nr. 3 og 5, og gerð ný aðkoma að Launrétt 5.
Samþykkt í sveitarstjórn 7. maí 2025.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 20. júní 2025.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
B deild — Útgáfudagur: 4. júlí 2025