Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Reykhólahreppur

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Barðastrandarsýslur

Undirritunardagur

15. desember 2025

Útgáfudagur

9. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1719/2025

15. desember 2025

GJALDSKRÁ

fyrir fráveitu Reykhólahrepps.

1. gr. Tengigjald.

Tengigjald fyrir einbýlishús er 238.000 kr.

Tengigjald fyrir fjölbýlishús er 238.000 kr. fyrir fyrstu íbúð en 143.000 kr. á hverja íbúð þar umfram.

Tengigjald fyrir atvinnuhúsnæði er 361.000 kr.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps er heimilt að innheimta tengigjald fyrir tengingu við fráveitukerfi sveitarfélagsins. Tengigjald skal innheimta við úthlutun lóðar sem er í eigu sveitarfélagsins eða það hefur ráðstöfunarrétt á og við útgáfu byggingarleyfis á öðrum lóðum.

2. gr. Fráveitugjald.

Fráveitugjald er 0,25% af heildarfasteignamati.

Sveitarstjórn Reykhólahrepps er heimilt að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum sem tengdar eru eða munu tengjast fráveitu sveitarfélagsins.

Fráveitugjald greiðist til sveitarsjóðs Reykhólahrepps og skulu gjalddagar vera hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöldin ekki greidd á eindaga, auk áfallins innheimtukostnaðar.

Fráveitugjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár eftir gjalddaga.

3. gr. Gildistaka.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 13. og 14. gr. laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009. Gjöld samkvæmt gjaldskránni, önnur en fráveitugjald, miðast við byggingarvísitölu í desember 2025 breytast í samræmi við hana árlega.

Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1815/2024.

Gjaldskrá þessi er samþykkt í sveitarstjórn Reykhólahrepps 15. desember 2025.

Reykhólahreppi, 15. desember 2025.

Ólafur Þór Ólafsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 9. júní 2026

Tengd mál