Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Skipulagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
15. desember 2025
Útgáfudagur
16. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1386/2025
15. desember 2025
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.
Breyting á deiliskipulagi fyrir lóðina Áshamar 34-40 í Hamranesi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 5. nóvember 2025 breytingu á ofangreindu deiliskipulagi. Breytingin felst í að íbúðum er fjölgað úr 84 íbúðum í 105 íbúðir. Byggingarmagn eykst ekki, stórum íbúðum er breytt í tvær íbúðir undir 80 fm. Það er gert með því að skipta 21 íbúð sem er yfir 130 fm í tvær minni íbúðir. Bílastæðum fjölgar úr 105 stæðum í 110 stæði og bílastæðum hreyfihamlaðra fjölgar úr 5 stæðum í 6 stæði. Málsmeðferð var skv. 1. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.
Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 3. áfanga, vegna Tinnuskarðs 24.
Í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Hafnarfjarðar á fundi sínum 24. september 2025 ofangreinda breytingu. Breytingin felst í að fjölga íbúðum á lóðinni um eina og bílastæðum um eitt.
Uppdrættir ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 15. desember 2025.
F.h. umhverfis- og skipulagssviðs,
Anna Margrét Tómasdóttir verkefnisstjóri.
B deild — Útgáfudagur: 16. desember 2025