Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

12. desember 2023

Útgáfudagur

28. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1556/2023

12. desember 2023

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Á eftir 1. málslið 2. mgr. 48. gr. reglnanna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umsóknarfrestur um BS-nám í hjúkrunarfræði fyrir fólk sem lokið hefur öðru háskólaprófi skal þó vera til 15. apríl fyrir komandi háskólaár.

2. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið af rektor Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 12. desember 2023.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2023

Tengd mál