Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. desember 2021

Útgáfudagur

27. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1535/2021

13. desember 2021

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 890/2016 um doktorsnám og doktorspróf við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglnanna:

  1. Orðin „og formanni dómnefndar“ í 5. málsl. 3. mgr. falla brott.
  2. 6. málsl. 3. mgr. orðast svo: Verði ágreiningur fer um hann samkvæmt verklagsreglu sem háskólaráð setur, sbr. 70. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 68. og 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 13. desember 2021.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2021

Tengd mál