Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Kaldrananeshreppur

Málaflokkur

Gæludýr, Strandasýsla

Undirritunardagur

10. desember 2025

Útgáfudagur

14. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1715/2025

10. desember 2025

GJALDSKRÁ

vegna hunda- og kattahalds í Kaldrananeshreppi.

1. gr.

Við skráningu hunda og katta skal innheimta gjald sem hér segir:

Skráning eins gæludýrs er 10.150 kr. með vsk fyrir hvert gæludýr í þéttbýlinu Drangsnesi, þ.e. hunda og ketti.

2. gr.

Af skráðum hundum og köttum skal innheimta árlegt eftirlitsgjald sem hér segir:

Árlegt leyfisgjald vegna eins gæludýrs er 10.150 kr. með vsk.

3. gr.

Við afskráningu hunds/kattar ber að endurgreiða árlegt leyfisgjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu og þegar gengið hefur verið frá afskráningu.

Heimilt er að fella niður eða ákveða lægra gjald fyrir nytjahunda, svo sem hunda sem notaðir eru til löggæslu eða björgunarstarfa og minkahunda. Af leiðsöguhundum sem blindir eða sjóndaprir nota vegna fötlunar sinnar skal ekki greiða gjald.

4. gr.

Gjalddagi árlegs leyfisgjalds er 1. febrúar og eindagi 28. febrúar.

Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga, auk áfallins innheimtukostnaðar

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 4. mgr. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Gjaldskrá þessi staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis, nr. 1807/2024.

Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Kaldrananeshrepps 10. desember 2025.

Drangsnesi, 10. desember 2025.

F.h. Kaldrananeshrepps,

Finnur Ólafsson oddviti.

B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026

Tengd mál