Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
19. apríl 2016
Útgáfudagur
4. maí 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 368/2016
19. apríl 2016
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 29. gr.:
- Síðasti málsliður 1. mgr. fellur brott.
-
Á
eftir
3.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Stundakennarar við Háskóla Íslands sinna kennslu og námsmati í samræmi við reglur Háskólans og viðkomandi deildar þar um. Skal stundakennsla ekki vera aðalstarf og starfshlutfall stundakennara að hámarki 49%. Gera skal skriflegt samkomulag um ráðningu og ráðningarkjör stundakennara sem og kennslu og námsmat í upphafi misseris og til misseris í senn. Settar skulu verklagsreglur um almennt hæfi stundakennara við Háskóla Íslands og ferli við ráðningu þeirra, sem forseti fræðasviðs taki mið af við framkvæmd ráðningar.
2. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 19. apríl 2016.
Jón Atli Benediktsson.
Halldór Jónsson.
B deild - Útgáfud.: 4. maí 2016