Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir
Undirritunardagur
29. maí 2024
Útgáfudagur
19. júní 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 717/2024
29. maí 2024
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Malí, nr. 381/2018.
1. gr. Almenn ákvæði.
2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktun er að ræða, hverjar þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda eru og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.
2. gr. Þvingunaraðgerðir
Eftirfarandi bætist við 1. mgr. 2. gr. reglugerðar um þvingunaraðgerðir varðandi Malí nr. 381/2018:
| 1.9 | Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/1204 frá 22. apríl 2024 um breytingu á ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2017/1775 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 1.9. | |
| 2.7 | Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2024/1205 frá 22. apríl 2024 um breytingu á reglugerð ráðsins (ESB) 2017/1770 um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Malí, sbr. fylgiskjal 2.7. |
2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef Stjórnartíðinda Evrópusambandsins. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vef, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 68/2023.
3. gr. Viðurlög.
6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 68/2023 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna skal sæta viðurlögum skv. 37. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.
4. gr. Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. maí 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 19. júní 2024